flutningur fólks til Venesúela.
Forseti. Í framhaldi af tiltölulega nýlegum úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem að mínu mati og fleiri var pólitískt mótiveraður í kjölfar áróðurs, m.a. héðan úr pontu Alþingis, gegn dvalarleyfisveitingum til einstaklinga sem flúðu Venesúela, fóru fram flutningar á fólki aftur til Venesúela. Það var í trássi við og þrátt fyrir yfirlýsingar annars vegar Amnesty International frá október 2023, það er nú ekki langt síðan það var, þess efnis að ríki ættu ekki að senda fólk aftur til Venesúela vegna þess að þar sé líf þess, öryggi og frelsi í hættu, ekki vegna þess að það sé svo mikil fátækt og erfitt efnahagsástand í landinu, og sömuleiðis gaf Flóttamannastofnun SÞ út ákall árið 2019 til ríkja um að taka á móti fólki sem flúði Venesúela og þetta ákall hefur ekki verið dregið til baka af hálfu stofnunarinnar. Áætlað er að u.þ.b. 7,7 milljónir hafi flúið Venesúela, það er rétt tæplega þriðjungur þjóðarinnar, og fá hafa snúið aftur en tölur eru á reiki vegna þess að talað er um þau sem hafa snúið til baka sjálfviljug en inni í þeim tölum er fólkið sem flutt er héðan nauðungarflutningum frá Íslandi í kjölfar þess að hafa fengið synjun um dvalarleyfi. Það er samt sem áður í orðaforða hæstv. ríkisstjórnar kallað sjálfviljug heimför. Tölurnar eru því á reiki en það eru ekki nema mögulega nokkur hundruð þúsund sem hafa snúið til baka. Stórt hlutfall þeirra sem snúið hafa til baka hefur, í þeim fáu könnunum sem gerðar hafa verið, lýst því yfir að þau hyggist reyna að komast þaðan aftur, ekki vegna fátæktar heldur vegna erfiðs öryggisástands í landinu. Samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og meira að segja ekki bara samkvæmt samningum heldur er það grundvallarregla í þjóðarétti, er stjórnvöldum það óheimilt, það er bann við því að senda fólk þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu.
Spurning mín til hæstv. ráðherra varðar þessa flutninga þar sem fréttir af meðferð fólks við komuna til Venesúela voru um að af því hefðu verið teknir peningar, ferðaskilríki og þeim jafnvel birt skjal sem óljóst var hvers efnis væri en ýmislegt benti til að væri mögulega ákæra um landráð. Það er mjög þekkt tegund ofsókna alræðisríkja á hendur fólki sem leitar verndar út fyrir landsteinanna vegna annarra ofsókna sömu stjórnvalda. Ekkert eftirlit er með flutningum fólks héðan og því síður eftirfylgni með fólki sem sent er í burtu.
Því spyr ég hæstv. ráðherra: Með hvaða hætti ganga stjórnvöld úr skugga um að fólk sem flutt er til Venesúela í kjölfar synjunar á umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi (Forseti hringir.) verði ekki ofsótt í heimalandinu í kjölfarið, svo sem með ákæru fyrir landráð eða önnur brot, sem teljast myndu ofsóknir í skilningi flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna?