flutningur fólks til Venesúela.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd skoða stjórnvöld, þ.e. Útlendingastofnun í þessu tilfelli og eftir atvikum kærunefnd útlendingamála, með einstaklingsbundnum hætti aðstæður umsækjanda í heima- eða viðtökuríki. Í því felst m.a. að tekin er afstaða til þess hvort umsækjendur eigi á hættu á að verða fyrir ofsóknum við heimkomu. Við mat á umsóknum hafa Útlendingastofnun og eftir atvikum kærunefnd útlendingamála til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd, sem heitir á enskri tungu, með leyfi forseta, Handbook and guidelines on procedures and criteria for determining refugee status. Þá tekur aðferðafræði trúverðugleikamats þeirra mið af skýrslu Flóttamannastofnunar og flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, með leyfi forseta, Beyond Proof. Credibility Assessment in EU Asylum Systems. Mat á trúverðugleika frásagnar er byggt á endurritum af viðtölum hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki, þar á meðal frá alþjóðastofnunum, frjálsum félagasamtökum og öðrum ríkjum. Úrskurðir kærunefndarinnar eru birtir á úrskurðarvef Stjórnarráðsins eins fljótt og auðið er. Í þeim úrskurðum er varða kærendur frá Venesúela má sjá frekari umfjöllun um mat á mögulegri hættu á ofsóknum í Venesúela og rökstuðning fyrir niðurstöðu nefndarinnar.