154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

ytri rýni aðgerða á grundvelli laga um almannavarnir.

724. mál
[18:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Í samræmi við stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum er nú unnið í dómsmálaráðuneytinu að heildarendurskoðun almannavarnalaga í mjög breiðu samráði. Markmiðið er að efla almannavarnakerfið, styrkja það sem vel gengur og bæta það sem betur má fara. Með frumvarpinu verður m.a. lögð áhersla á að skýra skipulag, ábyrgð og hlutverk lykilaðila en með því fæst sameiginleg sýn á hvernig almannavarnakerfið á Íslandi verði best skipulagt þannig að það verði sem best í stakk búið til að takast á við hvers konar vá.

Almannavarnalögin voru sett árið 2008 og hafa sætt takmörkuðum efnislegum breytingum síðan, fyrir utan breytingafrumvarp sem var samþykkt á Alþingi 2022. Með því frumvarpi voru gerðar ákveðnar breytingar á lögunum sem vörðuðu m.a. rýni aðgerða. Meðal þeirra var að rannsóknarnefnd almannavarna var lögð niður og í hennar stað komið á þrepaskiptri rýni. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að rannsóknarnefndin sem sett var á fót með lagasetningunni árið 2008 hafi einungis einu sinni hafið rannsókn samkvæmt hlutverki sínu. Nefndin hafi ekki verið á fjárlögum og aldrei skilað skýrslu á grundvelli laganna.

Í 28. og 29. gr. almannavarnalaga er nú mælt fyrir um þrepaskipta rýni á aðgerðum viðbragðsaðila. Með því móti tekur eðli og umfang rýninnar mið af alvarleika þess ástands sem rýna skal. Í fyrsta lagi er ávallt tryggt að fram fari innri rýni á viðbrögðum í almannavarnaástandi. Í öðru lagi fer ytri rýni fram þegar stjórn samhæfingar- og stjórnstöðvar telur það nauðsynlegt og í þriðja lagi getur ráðherra einnig óskað eftir skýrslugjöf eða ytri rýni. Eðli málsins samkvæmt er ekki mikil reynsla komin á beitingu nýrra ákvæða um rýni á aðgerðum viðbragðsaðila, þ.m.t. ákvæði 29. gr. laganna, en vonir standa til þess að þessi nýlega breyting skili mun meiri árangri en fyrra fyrirkomulag sem hafði reynst þungt í vöfum.

Rétt er að geta þess að ég hef tilkynnt að ég hafi til skoðunar að óska eftir ytri rýni á grundvelli 29. gr. almannavarnalaga vegna almannavarnaviðbragða tengdum jarðhræringum á Reykjanesi. Rýnina er almennt ætlað að framkvæma eftir að almannavarnastigi hefur verið aflétt en í sumum tilvikum er ljóst að ástæða er til að gera það á fyrra tímamarki. Ég tel eðlilegt í ljósi eðlis þeirra langvarandi atburðarásar sem á sér nú stað á Reykjanesi að meta hvort framkvæma eigi umrædda rýni áður en almannavarnastigi hefur verið aflétt. Gera má ráð fyrir að afstaða mín í þeim efnum liggi fyrir á næstu vikum.