ytri rýni aðgerða á grundvelli laga um almannavarnir.
Virðulegi forseti. Hér var talað um aðstoð almannavarna í Evrópusambandinu og það er vel. Ég hef nefnt það hér fyrr í dag að við gætum ekki bara lent í þeirri stöðu að þurfa að þiggja aðstoð heldur höfum við líka margsinnis verið í þeirri stöðu að veita aðstoð. Ég sat á fimmtudaginn í síðustu viku iðnþing Samtaka iðnaðarins og þar sagði Reynir Sævarsson, verkfræðingur hjá Eflu, sögu sem mér þótti áhugaverð. Fyrir 30 árum urðu miklar náttúruhamfarir í Frakklandi þar sem innviðir fóru í algjöra klessu, ef ég má nota það orð, og þá áttu þeir mjög erfitt með að ráða við þá innviðauppbyggingu eða ná tökum á því ástandi sem þar var. Þá var leitað til Íslendinga og það voru íslenskir verkfræðingar og íslenskt hugvit sem fór fyrir 30 árum til Frakklands, verkfræðingar frá Eflu. Það var grunnurinn að því að Efla opnaði skrifstofu í Frakklandi sem er enn að störfum. Það stórveldi sem Frakkland er á þeim tíma leitaði til Íslendinga til að byggja upp sína innviði.
Það er ekki tímabært að tala hér um fyrra fyrirkomulag þar sem það gekk ekki upp. Við þurfum að láta reyna á þær heimildir sem komu inn í lögin árið 2022 og það er líka vert að minna á að það er eðlilegt að viðbragðsaðilar þurfi að rýna sjálfa sig rétt eins og læknar þurfa að rýna störf sín. Það er ekki eftirlit heldur er fólk að læra af reynslunni. En síðan erum við með ytra eftirlit.