154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

aukið eftirlit á landamærum.

673. mál
[18:43]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Ef ég hef skilið hæstv. ráðherra rétt þá vísar hún í að aðstæðurnar séu þannig að mati lögregluyfirvalda að ekki séu uppfyllt skilyrði laga til þess að grípa til hertra ráðstafana. Mér finnst þetta svar ekki vera í fullu samræmi við þau skilaboð sem hæstv. ráðherra hefur gefið og verið þá endurómað frá lögregluyfirvöldum, m.a. í tengslum við umræðu um mikla þörf á auknum heimildum lögreglu. Mér finnst því ekki alveg fara saman hljóð og mynd í þessum svörum hæstv. ráðherra. Og af því að við erum að ræða hér um öryggi ríkisins og borganna, sem er auðvitað frumskylda íslenskra stjórnvalda að vernda, þá vil ég hvetja hæstv. ráðherra, af því að ég veit að hún er iðulega með allt sitt á hreinu og tekur þennan málaflokk mjög alvarlega og við treystum henni vel í því embætti sem hún sinnir, til að skoða þetta nánar og hafa augun á boltanum, ekki síst í samvinnu við okkar nánustu samstarfsþjóðir sem hafa þurft að grípa til hertra ráðstafana, þannig að við verðum þá ekki of sein til hér.