154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

skipulögð brotastarfsemi, vopnanotkun og refsiheimildir.

570. mál
[18:49]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og sérstaklega fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli sem skipulögð brotastarfsemi er. Umfang skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi hefur aukist verulega síðastliðin ár eins og víða annars staðar. Íslensk lögregluyfirvöld hafa varað við þeirri þróun undanfarin ár og bent á að áhættan vegna skipulagðrar brotastarfsemi á Íslandi teljist mjög mikil. Samhliða þessari þróun eykst hættan á því að börn og ungmenni dragist inn í þessa ólögmætu starfsemi. Ef við ætlum að koma í veg fyrir að börn og ungmenni gangi til liðs við skipulagða brotastarfsemi hér á landi líkt og gerst hefur í auknum mæli í nágrannaríkjum okkar er að mínu mati nauðsynlegt að gera löggæsluyfirvöldum kleift að bregðast við og grípa til aðgerða í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Lögregluyfirvöld þurfa að búa yfir nægum mannafla sem býr við viðeigandi menntun og búnaði til þess að geta tekist á við þær áskoranir sem málaflokknum fylgja.

Ég hef lagt fyrir Alþingi frumvarp er varðar breytingar á lögreglulögum en ég tel frumvarpið algjörlega nauðsynlegan lið til að efla aðgerðaheimildir lögreglu þegar kemur að baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi. Eitt af markmiðum frumvarpsins er að skýra heimildir lögreglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrotavarna og er því lögð áhersla á mikilvægi þess að lögreglan geti gripið fyrr inn í atburðarás og þannig fyrirbyggt að framin séu alvarleg brot.

Eitt af markmiðum frumvarpsins er að löggæsluyfirvöld geti framvegis unnið markvisst að aðgerðum í þágu afbrotavarna og er einkum horft til þess að efla getu lögreglu til að koma í veg fyrir skipulagða brotastarfsemi. Það er þó ekki hægt að líta fram hjá því að á meðan hættan vegna skipulagðrar brotastarfsemi er til staðar þá gegna almennar forvarnir og félagsleg úrræði mikilvægu hlutverki við að halda börnum og ungmennum frá brotastarfsemi. Sú áhætta er ávallt til staðar að jaðarsettir einstaklingar og hópar séu útsettari fyrir því að taka þátt í skipulagðri brotastarfsemi. Reynslan hefur sýnt að samvinna sveitarfélaga, lögreglu, heilbrigðis- og menntakerfis, auk annarra lykilaðila í hverju nærsamfélagi fyrir sig er forsenda fyrir því að varna ofbeldi og öðrum afbrotum. Lögreglu er falið samkvæmt lögum að vinna að afbrotavörnum og hefur dómsmálaráðuneytið lagt aukna áherslu á afbrotavarnir, þar með talið fræðslu og forvarnir og falið embætti ríkislögreglustjóra samhæfingu þess efnis meðal allra lögregluembættanna. Nýlega hefur stöðugildum hjá lögregluembættinu verið fjölgað til að sinna afbrotavörnum og samfélagslöggæslu og þá er hafin vinna við að byggja upp og samræma svæðisbundið samráð um afbrotavarnir. Þeir lögreglumenn sem sinna svokallaðri samfélagslöggæslu vinna markvisst að því að styrkja tengsl lögreglunnar við ungt fólk og færa lögregluna nærsamfélaginu.

Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur um árabil gefið út áhættumatsskýrslu vegna skipulagðrar brotastarfsemi. Í þeirri vinnu hefur aukin áhersla verið lögð á hlut ungmenna í afbrotum og tengingu við skipulagða brotastarfsemi. Á Norðurlöndunum hafa aukin umsvif skipulagðra glæpahópa orðið til þess að ungmenni sem eru í veikri félagslegri stöðu gangi til liðs við þá.

Þjóðaröryggisráð hefur í nýlegum skýrslum sínum fjallað um skipulagða brotastarfsemi og m.a. komið þeirri ábendingu á framfæri að herða þurfi reglur um skotvopn og endurskoða undanþágur frá banni við innflutningi sjálfvirkra og hálfsjálfvirkra skotvopna. Nýlega voru samþykktar á Alþingi breytingar á vopnalögum sem er m.a. ætlað að takmarka aðgengi að hálfsjálfvirkum og alsjálfvirkum vopnum. Þær breytingar sem samþykktar voru með lögunum eru til þess fallnar að fækka öflugum skráðum vopnum í umferð sem að sama skapi minnkar möguleika brotahópa á að komast yfir skráð vopn til notkunar í ólögmætum tilgangi. Með lögunum hafa jafnframt heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með skotvopnum verið auknar, auk þess sem ákvæðum um afturköllun og upptöku hefur verið breytt þannig að skýrar er orðið hvenær hægt sé að afturkalla vopnaleyfi og til hvaða úrræða sé hægt að grípa til í framhaldinu. Eftir sem áður munu óskráð vopn enn vera til staðar þótt breytingarnar hafi verið gerðar á vopnalögum, en lykilatriði til að sporna við ólöglegri notkun vopna er að til staðar sé öflug löggæsla. Löggæsluyfirvöld þurfa að hafa burði og getu til að takast á við málefni sem snúa að ólöglegri notkun vopna og má þar sem dæmi nefna sérsveit lögreglu sem er sérhæfð til að takast á við mál þar sem vopn koma við sögu. — Ég held að ég þurfi að koma meiru að í seinna svari mínu.