154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

farþegar og áhafnir flugfélaga.

679. mál
[19:02]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður spyr hvernig tryggt sé að erlend flugfélög sem fljúga hingað til lands framfylgi þessari skyldu sinni. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að á Íslandi gilda íslensk lög. Farþegaupplýsingadeild ríkislögreglustjóra hefur samband við flugfélög sem fljúga reglulega hingað til lands og gerir þeim grein fyrir skyldu þeirra til að afhenda upplýsingar um farþega og áhafnir. Deildin veitir flytjendum jafnframt aðgang að stafrænni gátt sem flugfélögum ber að senda upplýsingar í gegnum. Það er því skýrt verklag til staðar til að tryggja að flugfélög sem fljúga reglulega til landsins uppfylli skyldur sínar að þessu leyti.

Vanræki flugfélag aftur á móti þessar skyldur sínar samkvæmt 17. gr. laganna varðar það refsingu samkvæmt 108. gr. a tollalaga og samkvæmt því ákvæði er tollayfirvöldum heimilt að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki eða einstaklinga sem brjóta gegn skyldu til að veita upplýsingar og skal við ákvörðun sekta m.a. taka tillit til alvarleika brots, hvað það hefur staðið lengi, samstarfsvilja hins brotlega aðila og hvort um ítrekað brot er að ræða. Stjórnvaldssektir sem eru lagðar á einstaklinga geta numið frá 10.000 kr. til 100.000 kr. en stjórnvaldssektir sem eru lagðar á fyrirtæki geta numið frá 400.000 kr. til 2 millj. kr. Þegar spurt er hvort íslensk stjórnvöld hafi beitt erlend flugfélög viðurlögum fyrir að afhenda ekki slíkar upplýsingar þá hafa, samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra, engin flugfélög fram til þessa verið beitt viðurlögum af hálfu tollayfirvalda en ákvarðanir um slíkt eru teknar í samráði við ríkislögreglustjóra.

Hv. þingmaður spurði einnig hvort ráðherra hefði upplýsingar um að erlend flugfélög hafi ekki afhent lögreglu slíkar upplýsingar og hvort ekkert hafi verið aðhafst vegna þessa. Innan ESB er í gildi tilskipun 2016/681 um farþegaupplýsingar, „PNR Directive“ svokölluð. Þessi tilskipun sem öll aðildarríki hafa leitt í lög sín kveður m.a. á um að flugfélögum sé skylt að miðla upplýsingum um farþega og áhafnir til lögbærra yfirvalda í aðildarríkjum sambandsins. Tilskipun þessi kveður einnig sérstaklega á um hvernig yfirvöldum beri að meðhöndla og vinna farþegaupplýsingar auk þess sem sérstök ákvæði gilda um persónuvernd.

Ísland er ekki aðili að þessari tilskipun og hefur því efni hennar ekki verið innleitt í íslensk lög. Vegna þessa hafa ýmis evrópsk flugfélög litið svo á að þeim sé ekki heimilt að afhenda íslenskum stjórnvöldum farþegaupplýsingar samkvæmt þeirra landslögum sem byggja á tilskipuninni, einkum vegna persónuverndar. Evrópusambandið er sama sinnis hvað þetta varðar og hefur brugðist við með því að gera sérstaka tvíhliða samninga við ríki utan ESB sem heimila evrópskum flugfélögum af afhenda viðkomandi ríkjum þessar upplýsingar. Nú þegar hefur ESB gert slíka samninga m.a. við Bandaríkin og Kanada. Framkvæmdastjórn ESB hefur nú tekið ákvörðun um að gera sams konar samning við öll Schengen-ríkin sem standa utan ESB, þar á meðal Ísland. Gert er ráð fyrir að samningaviðræður hefjist á næstu vikum eða mánuðum og að samningur verði undirritaður síðar á þessu ári.

Rétt er að árétta að íslensk stjórnvöld fái í dag afhentar upplýsingar um 93% af öllum farþegum sem ferðast hingað til lands og má ætla að það hlutfall nái hátt í 100% í kjölfar þess að ofangreindur samningur við ESB tekur gildi. Eins og áður greinir hefur sektum ekki verið beitt vegna brota gegn þessari skyldu sem má m.a. væntanlega rekja til þess að fyrirséð er að fyrrgreindur samningur verði gerður við Evrópusambandið.