154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

farþegar og áhafnir flugfélaga.

679. mál
[19:07]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Ég veit ekki af hverju ég er svona hissa að heyra af frekjuganginum í ESB-ríkjunum. Það eru gríðarlega mikilvægar upplýsingar fyrir stjórnvöld að hafa hverjir koma hingað til lands og auðvitað ætti enginn að komast upp með það að fara ekki að lögum varðandi þá upplýsingagjöf, ekki frekar en öðrum lögum. Hæstv. ráðherra svarar því sem sagt að tækin séu til staðar, viðurlögin sömuleiðis, þeim sé bara ekki beitt. Ég hef ákveðinn skilning á því af því að þetta eru væntanlega nánar samstarfs- og vinaþjóðir okkar sem hafa gripið til þess ráðs að gera ákveðna samninga um þetta fyrirkomulag. Okkur varðar hins vegar ekkert um það hvaða ESB-reglur gilda í viðkomandi löndum. Ef til vill kemur þessi ráðgjöf of lítið og of seint, svona í slæmri þýðingu, en ég hvet hæstv. ráðherra til þess að gera skýlausa kröfu til félaga sem starfa frá ESB-ríkjum að fara hreinlega að íslenskum lögum. Ég sæi það fyrir mér að Play myndi bera það fyrir sig í Þýskalandi að þeir gætu ekki afhent einhverjar upplýsingar út af íslenskum lögum og þýsk stjórnvöld tækju þau svör góð og gild. Þetta er auðvitað ekkert annað en yfirgangur.