rafeldsneytisframleiðsla.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur fyrir þessa umræðu og ég ætla að skipa mér þeim megin umræðunnar að segja að mér finnst gleðilegt að verið sé að ræða framtíðarmúsík og við ættum að gera meira af því að horfa til lengri tíma. Þegar við ræðum um rafeldsneyti þá erum við kannski fyrst og fremst að horfa á þungaflutninga, skipin og flugið, orkuskipti þar sem hentar illa að rafvæða beint. Orkuskipti á hafi og í flugi eru auðvitað lykilþættir í því að ná árangri þannig að þetta er mikilvæg umræða. Mér fannst birta yfir þessu og framtíðarsýn og aðeins annar tónn en í ræðu hæstv. ráðherra. Ég ætla ekki að segja að hann hafi mætt viðskotaillur hérna inn í sal en það var eitthvað mjög nálægt því. Mögulega er skýringin sú að ríkisstjórnin hefur sett sér markmið um orkuskipti fyrir 2040 og allir búnir að átta sig á því að þessi markmið eru óraunhæf. Hér eins og annars staðar í þessu samstarfi þá hefur auðvitað áhrif að ríkisstjórnin gengur ekki í takti, getur ekki gengið í takti, vill ekki ganga í takti. Þetta hefur áhrif. Þá er fínt að koma hingað í þingsal og tala um hvað stjórnarandstaðan sé mikið að þvælast fyrir. Hér mætti benda ráðherranum á það að hann situr í meiri hluta og ráðherra sem getur ekki mætt til starfa án þess að vera með stjórnarandstöðuna klappandi fyrir sér í þingsal alla daga þarf að herða sig.
Til þess að við náum árangri þá þarf næga raforku, það þarf regluverk sem virkar. Þar þarf að rýna rammaáætlun og leyfisveitingaferli. Við þurfum skýr markmið, við eigum markmiðin en við þurfum líka áætlanir sem raungera þessi markmið. Ég vona svo sannarlega, virðulegi forseti, að umræðan geti verið önnur en þessi sem ráðherrann er að leggja hér á borð fyrir okkur í dag, (Forseti hringir.) hann fari að tala um sínar hugmyndir, sínar aðgerðir, sína hugmyndafræði og mæti bara aðeins glaðari í sal.