rafeldsneytisframleiðsla.
Virðulegur forseti. Það er ekkert launungarmál að við þurfum fleiri græna orkugjafa ef við ætlum að ná markmiðum okkar um að draga hér úr losun gróðurhúsalofttegunda. Framleiðsla rafeldsneytis sem vetnis eða annars rafeldsneytis í formi ammoníaks, metanóls eða metans eru græn tækifæri sem bíða þess að verða nýtt. Framleiðsla rafeldsneytis á Íslandi telst ábatavæn og getur orðið mikilvægt framlag í baráttu okkar gegn loftslagshlýnun. Við höfum haft ákveðin markmið í átt að kolefnishlutleysi, markmið sem af ýmsum hafa talist nokkuð háleit, en við ætlum okkur að standast okkar skuldbindingar í loftslagsmálum. Með því að framleiða endurnýjanlega orkugjafa til að fullnægja þörfum innan lands liggja einnig gríðarleg tækifæri í að hefja útflutning á rafeldsneyti. Framleiðsla á rafeldsneyti er kostnaðarsöm aðgerð en þótt framleiðsla á rafeldsneyti og sala sé í dag hlutfallslega lítil þá mun eftirspurn eftir grænu vetni, sem framleitt hefur verið með rafgreiningu vatns og endurnýjanlegri orku, einungis fara vaxandi á komandi árum. Áhugi fjárfesta er mikill. Eitt af tækifærum Íslands við framleiðslu rafeldsneytis er að nýta mögulega árstíðabundna umframorku og hámarka arðsemi.
Virðulegur forseti. Getur það til að mynda fléttast inn í áherslur stjórnvalda að stofna hér ríkisfélag um rafeldsneytisframleiðslu? Þótt ég hafi orðið þess áskynja að hæstv. ráðherra sé mér ekki alveg sammála í því tel ég svo vera og hef tvisvar sinnum lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis hér í þinginu.
Umræðuna þurfum við að taka. Mikilvægi þess að Ísland geti orðið sjálfbært þegar kemur að öflun rafeldsneytis er ótvírætt. Sjálfbærni í orkuöflun er þjóðaröryggismál, fyrir utan þá þjóðhagslegu hagsmuni sem af því hljótast að framleiða innlenda orkugjafa til notkunar í orkuskiptum Íslendinga.