rafeldsneytisframleiðsla.
Herra forseti. Við Íslendingar höfum mikil tækifæri í orkumálum eins og við vitum öll. Eitt af þeim er að framleiða rafeldsneyti en hugtakið rafeldsneyti er yfirheiti eða samnefnari yfir vetni og það sem búið er til úr vetni, sem er þá metan, metanól og síðan ammoníak. Undirstaða þessarar áhugaverðu framleiðslu og nýsköpunar henni tengdri er aðgangur að raforku. Við Íslendingar erum rík þjóð á mörgum sviðum, ekki síst af náttúruauðlindum, og það eru sannarlega forréttindi að geta framleitt sitt eigið rafmagn með umhverfisvænasta hætti sem til er. Það er hægt að framleiða rafeldsneyti hvar sem er á landinu svo framarlega sem næg raforka sé til staðar. Þegar kemur að framleiðslu á metani eða metanóli þarf hins vegar koltvísýring eða CO2 og til að framleiða hreint vetni þarf raforku og vatn. Þegar kemur að loftslagsmálum þá skiptir höfuðmáli að draga úr koltvísýringi eða CO2 og tækifæri felast í því að nota CO2 til framleiðslu á rafeldsneyti. Það getur hins vegar verið erfiðleikum bundið að taka hann frá stóriðjunni, t.d. vegna kostnaðar sem því fylgir. Sé það gert er sú orka sem til verður, rafeldsneytið, græn orka. Sé koltvísýringurinn hins vegar tekinn frá varmavirkjunum við framleiðslu á rafeldsneyti er það ekki flokkuð sem græn orka samkvæmt ETS-kerfi Evrópusambandsins. Hér þurfa stjórnvöld að stíga inn í og gæta hagsmuna okkar og fá þessu breytt. Það er okkur mjög mikilvægt. Það eru mikil tækifæri sem felast í því að geta keyrt skipaflotann og stærri bíla eins og flutningabíla á rafeldsneyti og til að nýta þessi miklu tækifæri sem við höfum verðum við að greiða fyrir orkuskiptum og taka út flöskuhálsa sem standa í vegi fyrir þessari mikilvægu nýsköpun og þróun.
Að lokum vil ég segja það, herra forseti, að við þurfum að styðja betur við einkaframtakið í nýsköpun á þessu sviði. Ríkisrekin nýsköpun veldur óvissu og hana skortir drifkraft, hugmyndaauðgi og lausnir sem liggja hins vegar í krafti einstaklinganna.