154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

rafeldsneytisframleiðsla.

[14:40]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Eftirspurn eftir rafeldsneyti mun alveg örugglega aukast töluvert á næstu árum og áratugum en hve mikið og hversu hratt vitum við auðvitað ekki. Ég held engu að síður að í þessu geti falist mjög spennandi tækifæri fyrir Ísland og nú þegar eru farin af stað mjög spennandi verkefni á þessu sviði. Þar hafa reyndar opinber fyrirtæki verið í fararbroddi, talandi um ríkisrekna nýsköpun. Hún getur bara verið ágæt. Orkuveita Reykjavíkur hefur verið að framleiða vetni í jarðhitagarði ON við Hellisheiðarvirkjun núna í fjögur ár. Landsvirkjun er með tvö rafeldsneytisverkefni í gangi, annars vegar við Ljósafossvirkjun, þar er vetnisframleiðsla, og hins vegar á Bakka við Húsavík þar sem verið er að fanga og nýta útblástur frá kísilmálmverksmiðjunni til framleiðslu á grænu metanóli sem geti þá m.a. nýst fyrir skipaflotann. Þetta finnst mér vera jákvæð þróun og þetta eru verkefni sem hafa gefið góða raun. Þess vegna finnst mér svolítið athyglisvert að heyra hæstv. umhverfis- og orkuráðherra lýsa svo eindreginni andstöðu við að opinberir fjármunir séu nýttir til fjárfestinga í rafeldsneytisframleiðslu eins og hér hefur að einhverju leyti verið gert. Það er auðvitað rétt sem hér hefur komið fram að rafeldsneytisframleiðsla er mjög orkufrek en eitt af því sem gerir hana að spennandi kosti er að hún þarf ekki endilega stöðugt afl til þess að vera hagkvæm. Hún getur jafnvel verið hagkvæmari á ódýru og ótryggu afli, sem þýðir þá að hún getur farið mjög vel saman við vindorkunýtingu. Það þýðir líka að hér eru kannski tækifæri til að nýta betur þessa árstíðabundnu umframorku þannig að við getum fengið sem allra mest út úr raforkukerfinu okkar.