154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

rafeldsneytisframleiðsla.

[14:47]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra en ekki síst hv. fyrirspyrjanda, þingmanninum Líneik Önnu Sævarsdóttur, fyrir þessa umræðu sem er mikilvæg. Það hafa fleiri hv. þingmenn komið inn á það í þessu samhengi að mikilvægt sé að ræða þetta mál út frá mörgum vinklum og gaman að ræða einhverja svona framtíðarmúsík, svo að ég vísi í hv. þm. Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.

Ég vil líka taka undir það sem fram hefur komið hér á undan, að miklar hugmyndir einstakra fyrirtækja eiga ekki endilega að leggja línurnar í því hvert við förum í málum eins og þessu. Þar er ég sammála hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, nú hæstv. forseta.

En gott og vel, hæstv. ráðherra segir: Það sem þarf er græn orka. Það er rétt en þá langar mig að benda á einn vinkil, annan tveggja sem ég ætla að draga hér upp í mínu máli, en það er til að mynda orkunýtingin, þ.e. hvernig nýtist sú framleidda raforka sem fer svo til framleiðslu á rafeldsneyti og notkunar á því? Ég hef heyrt tölur allt niður í 10% nýtingu í þessu samhengi. Þá spyr ég, sem einn vinkill inn í þessa umræðu: Er það skynsamleg nýting á raforkuframleiddri orku? Hér hefur líka verið rætt mikilvægi þess að við stöndum sjálf í þeirri framleiðslu sem við þurfum á að halda og jafnvel til útflutnings. Ég vil þá líka benda á það í því samhengi að stundum er smæðin bara svo mikil að innflutningur er eitthvað sem við þurfum að reiða okkur á. Við framleiðum ekki allt hér sem við neytum eða nýtum eins og við vitum.

Svo sagði hv. þm. Jakob Frímann Magnússon: Við skulum ganga skynsamlega um gleðinnar dyr. Þá kem ég að hinum vinklinum sem ég vil benda á. Við höfum nefnilega önnur markmið, aðrar áskoranir, önnur verkefni sem við höfum undirgengist, svo sem mikilvægi verndar líffræðilegrar fjölbreytni eða lífbreytileika, víðernanna eins og hv. þingmaður kom inn á, sem setur okkur ákveðnar skorður í því að við getum ekki orðið við öllum hugmyndum sem fram koma.