154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[15:08]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna. Þetta er áhugaverð skýrsla. Mig langar bara að kasta einni laufléttri til hæstv. ráðherra sem er spurningin hvort staðan sé ekki sú að hæstv. ráðherra beri sjálfur ábyrgð á einhverri gullhúðun sem kemur fram í þessari skýrslu.