154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[15:15]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er um mikilvægt mál að ræða. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðu sína og ekki síst hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja máls á þessu upphaflega. Þegar maður skoðar þetta mál þá er skýrslan sjálf mjög áhugaverð og líka blaðið sem fylgir með. Það er mjög áhugaverð lesning.

Mig langar að byrja aðeins á almennari nótum. Það eru 30 ár síðan EES-samningurinn tók gildi á Íslandi 1. janúar 1994 og mér finnst að þetta mál sé hluti af ákveðnu andvara- og agaleysi þegar kemur að reglum frá Brussel sem eru leiddar inn í íslenskan rétt. Þetta er náttúrlega mjög óvanaleg leið hjá fullvalda ríki, að við séum að taka upp í íslenskan rétt ákvæði, tilskipanir sem er búið að samþykkja í sameiginlegu EES-nefndinni svokallaðri. Ég vil taka fram að við höfum aldrei beitt hinum stjórnskipulega fyrirvara, þeirri neitunarlöggjöf sem sameiginlega nefndin hefur samþykkt að setja í samninginn. Ef við förum aðeins lengra þá þurfum við klárlega að efla hagsmunagæslu okkar í Brussel. Ég veit að það hefur verið gert en við þurfum að fara alla leið inn í sérfræðinganefndirnar þar sem er verið að semja þessi frumvörp og gera jafnvel kröfu til þess að þeir sem semja um þetta hjá EES taki tillit til íslenskra hagsmuna, eyju í Norður-Atlantshafi. Þar hefur ESB líka samningsskyldum að gegna. Þegar reglur ESB eiga við um EES-svæðið í heild þá þarf að taka tillit til okkar og landfræðilegrar stöðu okkar. Það er ekki hægt að segja við okkur: Þið fáið sömu reglur og Malta og Kýpur. Þetta fer inn í íslenskan rétt og við höfum aldrei sent mál til baka til EES-nefndarinnar og sagt að það eigi ekki við, við gerðum það t.d. ekki þegar reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri voru innleiddar með þriðja orkupakkanum og orkupökkunum. Það eru engin raforkuviðskipti yfir landamæri hér og þá eigum við ekki að vera að innleiða lög og reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri.

Hér er hins vegar komið að því sem lýtur að gullhúðun í íslenskum rétti, þegar stjórnvöld ganga lengra, setja íþyngjandi ákvæði umfram þær lágmarkskröfur sem eru gerðar í EES-gerðum, í EES-lögum. Þar virðist vera að það hafi ekki einu sinni verið farið að þeim reglum sem settar voru, að mér skilst 2018, um að tilgreina og rökstyðja það þegar farin er sú leið að hafa reglurnar meira íþyngjandi en lágmarkskröfurnar sem eru í EES-reglunum. Ég skora á ráðherra að skerpa á þessum reglum, hafa þær ítarlegri, það sé ekki einungis tilgreint og rökstutt heldur sé vakin sérstök athygli á þessu í framsöguræðum hjá ráðherrum og þeim sem mæla fyrir frumvörpum hér um EES-reglur og það sé sérstaklega tekið fyrir á nefndafundum sem fjalla um þau mál þannig að þingmenn séu alveg fullkomlega meðvitaðir um að verið sé að gera meira en lágmarkskröfur. Það virðist ekki hafa verið gert, þessum reglum hefur ekki verið fylgt og þessi rannsókn sem HR gerði sýnir að það virðist vera mikill misbrestur á að þessum kröfum sé framfylgt, þ.e. að þetta sé tilgreint og rökstutt. Það er alveg með ólíkindum að það sé misbrestur á þessu og framangreindum kröfum sé framfylgt í aðeins helmingi þeirra frumvarpa sem skoðuð voru og þess getið með skýrum hætti en í helmingnum, 50%, er erfitt að átta sig á því hvort verið sé að gera ríkari kröfur en nauðsynlegt er. Það er síðan farið í umfangsmikla rannsókn, tímafreka greiningarvinnu til að átta sig á því hvort verið sé að beita gullhúðun og þá að hvaða leyti. Hérna er greinilega ekki farið eftir þeim reglum sem búið er að setja. Það þarf að skerpa á þeim og við þurfum eiginlega að skoða þetta líka nákvæmlega, þótt reyndar sé hér farið lengra aftur í tímann, en við þurfum að skoða nákvæmlega hvar verið er að beita gullhúðun og hvar rökstuðningur er og hvar ekki.

Ég held að þetta ætti að vekja okkur til umhugsunar um það að við erum að taka inn reglur sem við semjum ekki algjörlega sjálf. Það eigum við að hafa algjörlega á hreinu þegar við erum að bæta við, í fyrsta lagi hvort við eigum að innleiða reglur eins og lög um raforkuviðskipti yfir landamæri eða aðrar reglur. Við eigum ekki að lögfesta reglur hér um járnbrautir af því að hér eru ekki járnbrautir. Við eigum ekki að gera það. Við eigum líka að sjá til þess að það sé ekki verið að gera eins og gert var og er fjallað ágætlega um hér í skýrslunni, vegna tilskipunar um löggjöf um burðarpoka. Þar er tilskipunin sjálf þannig, ef ég skil hana rétt, að það er verið að undanskilja. Í skýrslunni segir, með leyfi forseta: „Samkvæmt tilskipuninni eru það einungis þunnir plastpokar (15-50 míkrón) sem óheimilt er að afhenda án endurgjalds.“ Samkvæmt okkar lögum er hins vegar óheimilt að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er með eða án endurgjalds, á sölustöðum vara. Það er ekki kveðið á um slíkt bann í tilskipuninni. Við erum klárlega að ganga lengra þarna. Ég skil ekki af hverju við eigum að ganga lengra. Af hverju eigum við að ganga lengra og hafa þetta meira íþyngjandi fyrir okkar atvinnugreinar og verslun hvað þetta varðar? Ef við ætlum að hafa samræmdar reglur á fótboltavellinum sem er innri markaðurinn þá eigum við að hafa þær. Þetta „best í heimi“ heilkenni sem einkennir Íslendinga, við ætlum alltaf að ganga lengra, einhvers staðar úti í heimi taki menn eftir því að á Íslandi sé gengið lengra, við séum svo sniðug þar — það er enginn að spá í það. Við eigum að fylgja reglum ESB hvað varðar lágmarkskröfur. Og það að banna plastpoka út frá heildarumhverfisáhrifum, ef Evrópa gerir það ekki, af hverju eigum við að gera það? Ég tel að þetta sé gott dæmi um það að við eigum að stíga mjög varlega til jarðar varðandi gullhúðun.

En svo er annað líka sem kemur fram í skýrslunni varðandi þessa gullhúðun á plastpokunum, að rökstuðningur fyrir því að gera þessar auknu kröfur er ekki ítarlegur. Það er enginn sérstakur rökstuðningur fyrir því, það er bara gert.

Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fjallaði um dæmið á bls. 28, um rörin, 10 km langar leiðslur og 50 cm þvermál sem fara í umhverfismat þar sem tilskipunin segir að leiðslur sem eru stærri en 40 km og 80 cm í þvermál fyrir flutning á gasi og olíu o.s.frv., eigi að fara í umhverfismat. En við erum hins vegar í lögum nr. 11/2021, með viðmið um 10 km og 50 cm þvermál. Við erum að ganga enn þá lengra. Rökstuðningurinn er mjög áhugaverður hér á bls. 29, hann er hvorki fugl né fiskur. Maður getur ekki lesið neitt út úr þessu af hverju við eigum að hafa strangari reglur hérna. Það virðist vera að embættismenn hafi sennilega tekið sér þetta vald, ákveðið að hafa þetta svona án þess að spyrja þá sem bera endanlega ábyrgð á þessu, sem er þá ráðherra sem ber hina pólitísku ábyrgð. Mér finnst þetta vera mjög ámælisverð vinnubrögð, svo ég segi nú ekki annað.

Annað dæmi er varðandi víðerni og jarðmyndanir, tilskipun er lýtur að landi, um framkvæmd eða áætlun og bein eða óbein umtalsverð áhrif á land, landslag, víðerni, jarðmyndanir, jarðveg, vatn, loft og loftslag. Það er ekkert fjallað um jarðmyndanir í tilskipuninni. Við setjum hins vegar inn jarðmyndanir, þær eru tilgreindar í íslenskri löggjöf sem endurspegli sérstöðu jarðfræði Íslands, það má jú rökstyðja það þannig. Sama er með víðerni, umhverfisáhrif á víðerni. Það er ekki tilgreint í tilskipuninni. Ég tel mikilvægt að við förum ofan í þessi mál með sama hætti og hér er gert og gerum það á enn þá víðtækari hátt. Vonandi verður það gert.

Svo er þriðja dæmið um uppgræðslu lands á verndarsvæðum, framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Þar er talað um uppgræðslu lands á verndarsvæði. Þessi framkvæmdaflokkur er ekki í tilskipuninni frá 2011.

Svona virðist þetta vera aftur og aftur. Það er verið að smokra inn atriðum sem eiga ekki við, sem eru ekki í Evrópulöggjöfinni. Við verðum að vekja athygli á þessu með réttum hætti. Ég sé það bara á þessari vinnu hérna að það verður mjög mikið að gera. Við fáum tilskipanir og jú, þetta er EES-löggjöf, við verðum að samþykkja hana ef við ætlum ekki að valda straumhvörfum í EES-samstarfinu. Ég er þá ekki að tala t.d. um stóru málin en í svona málum sem almennt er litið á sem svona tæknilega löggjöf þá virðist vera að það sé verið að bæta inn í. Þetta er mjög ámælisvert og ég vona að hæstv. ráðherra og við hér á Alþingi tökum þetta til nánari skoðunar.

Það kemur fram á bls. 2 í skjalinu sem lagt er hér fram, skýrslu ráðherra en ekki skýrslunni sjálfri, með leyfi forseta:

„Niðurstaða skýrslunnar er sú að þörf er á að endurskoða og bæta verklag að því er varðar meðferð innleiðingarfrumvarpa.“

Það er klárt mál að þetta verður að gera. Það verður að endurskoða og bæta þetta verklag.

Svo heldur áfram, með leyfi forseta:

„Að því er varðar gullhúðun skiptir höfuðmáli að vekja athygli alþingismanna og hagsmunaaðila á því ef ætlunin er að gera meiri kröfur í innleiðingarlöggjöfinni en leiðir af lágmarkskröfum viðkomandi EES-gerðar.“

Þetta er grundvallaratriði. Það verður að vekja athygli okkar hér á Alþingi á því ef verið er að gera meiri kröfur. Það hefur ekki verið gert. Ég vonast til þess að þessi vinna haldi áfram sem hér hefur verið hafin við þessa skýrslu, prýðileg skýrsla að mörgu leyti eftir því sem ég hef náð að fara yfir.

Mig langar að fjalla hérna um hringrásarhagkerfið. Ég hef tekið eftir því að undanförnu að það er kominn mýgrútur af tunnum, ruslatunnum og öðru slíku. Þar erum við að ganga lengra en er gert í tilskipuninni. Af hverju? Ég man þegar ég var í námi í Belgíu 1998, þá var verið að flokka rusl. Það var ekki að vera flokka hér. Það er flokkað rusl í Skandinavíu. Þar er matarúrgangur settur í græna poka og svo er plastið sett í fjólubláa poka en þetta fer í sömu tunnuna úti í garði þegar þú hendir því. Það er af því að plastið er miklu eðlisléttara og það er mjög auðvelt að aðgreina úrganginn í endurvinnslustöðinni, í sorpstöðinni. Þess vegna þurfa íbúar ekki annað en að setja þetta í einhverja poka, setja þá svo í sömu tunnuna. Við erum hins vegar komin með plasttunnu, pappatunnu, matarúrgangstunnu og við erum komin með blandað sorp. Ég fer að halda að þessar sorpstöðvar hér geti ekki aðgreint plast frá matarúrgangi með sama hætti og gert er erlendis. Þetta leiðir til vandræða í bakgörðum og görðum hjá fólki af því að það eru komnar svo margar tunnur og allt verður að setja í sitthvora tunnuna. Það þarf ekki að gera það í Evrópu. Þannig virðist vera að við séum búin að ganga lengra hvað þetta varðar með lögum nr. 103/2021. Við erum að ganga lengra en fólst í lágmarkskröfum tilskipunar Evrópusambandsins um úrgang. Til hvers?

Þetta er bara gott dæmi um það að við virðumst ekki hafa fært rök fyrir því af hverju við erum að ganga enn þá lengra. Ég hélt að þetta væri einmitt þannig málaflokkur þar sem er mikilvægt að við gerum þetta rétt og vel og gerum þetta sem hagkvæmast, bæði fyrir okkur sjálf, borgarana, og líka sorpstöðvarnar. Ég vil bara taka þetta sem dæmi um það þegar ekki er farið nægilega vel ofan í málin og við erum að búa til okkar eigin reglur sem eru hreinlega íþyngjandi og virðast vera, þegar grannt er skoðað og farið dýpra í málið, óþarfar.

Ég tel ekki ástæðu til að hafa þetta lengra en þakka fyrir þessa skýrslu og tel að þessi umræða sé mjög mikilvæg og mikilvægt að við séum vakandi á öllum stigum EES-samstarfsins. Við þurfum að vera vakandi vegna þess að uppruni löggjafarinnar er ekki hjá okkur sjálfum. Þegar fullvalda ríki er að taka inn reglur annars staðar frá þá eigum við að vera á varðbergi. Ekki vera að taka inn óþarfareglur, ekki setja reglur á innri markaðnum sem eru meira íþyngjandi fyrir okkar fyrirtæki. Við eigum heldur að reyna að fara hina leiðina og sjá til þess að við í litlu samfélagi hér undir heimskautsbaug, sem er ekki í Mið-Evrópu, séum ekki að innleiða löggjöf þar sem á t.d. að færa flutninga fólks yfir í járnbrautirnar, við erum ekki með járnbrautir. Þá á ég að sjálfsögðu við flugið.

Ég tel ekki ástæðu til að fjalla nánar um þessa skýrslu en vonast til að þetta mál verði áfram vakandi á næstu misserum hér á Alþingi sem og annars staðar.