154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[15:29]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Við erum að tala um tvo nokkuð ólíka hluti, annars vegar hina svokölluðu gullhúðun sem er það þegar gengið er lengra en krafist er að lágmarki með tiltekinni Evrópugerð, t.d. þegar innleidd eru ákvæði um einhver lágmarksviðmið um vernd tiltekinna réttinda en ríkjum er heimilað að ganga lengra og vernda umrædd réttindi betur en krafist er. Ég tel að þetta geti alveg verið af hinu góða og engin ástæða til þess almennt að stemma sérstakri stigu við því þó að eðlilegt og sjálfsagt sé, eins og kveðið er á um í bæði lögum og reglum nú þegar, að það sé tilgreint sérstaklega hvernig innleiðingu gerðar er háttað og hvort gengið sé lengra en þörf krefur eða ekki.

Ég er því ósammála þingsályktunartillögu hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur og fleiri sem liggur fyrir þinginu en er þó ekki til umræðu akkúrat hér þó að hún sé nátengd, um að við setningu laga um EES-mál verði að jafnaði ekki gengið lengra en lágmarkskröfur viðkomandi EES-gerðar kveða á um. Við eigum að vera stolt af því að vera í fararbroddi við að gera það sem vel er og engin ástæða til að draga úr því. Þó að hér í salnum sé sannarlega fólk sem vill gera sitt besta til að gera Ísland óaðlaðandi í augum umheimsins svo að það fari ekki of mörgum að detta í hug að flytja hingað. Að því sögðu þá hef ég áhyggjur af því að ákvæði þingskapa séu ekki virt nægilega vel í meðförum þingsins á EES-málum og í raun meðförum hæstv. ráðherra því það eru fyrst og fremst ráðherrar sem leggja fram þorra þeirra lagafrumvarpa sem eru samþykkt hér.

Í lögunum segir að frumvörp sem innleiða eigi reglur er byggjast á EES-gerðum skuli að meginstefnu ekki fela í sér önnur ákvæði en þau sem leiðir af gerðinni og skal í greinargerð tilgreina hvaða gerðir frumvarpinu er ætlað að innleiða og taka fram ef gengið er lengra en lágmarkskröfur gerða kveða á um. Þetta er sjálfsagt og eðlilegt enda í lögum nú þegar. En þetta er ekki alltaf virt eins og kemur fram í skýrslu hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra og kæmi vafalaust fram í sambærilegum skýrslum annarra ráðherra í þessari ríkisstjórn. Það er nefnilega svo að margir þingmenn líta svo á að þegar EES-mál er komið á það stig að vera komið hér inn í þingsal í formi lagafrumvarps sé fátt sem við getum gert til þess að hafa áhrif á efni þess, hvað þá að taka einhverja heildarafstöðu til þess í formi einhvers annars en samþykktar. Þetta gerir það að verkum að margir þingmenn leyfa þessum málum oft að sitja á hakanum í forgangsröðun sinni á þeim mörgu og umfangsmiklu verkefnum sem liggja á borði hvers okkar. Jafnvel þó að fólk setji sig inn í málin er gríðarmikil vinna fólgin í því að keyra saman tiltekna EES-gerð og þau lagaákvæði sem lögð eru til henni til innleiðingar. Eins og kemur fram í skýrslu hæstv. ráðherra er jafnan þörf á umfangsmikilli og tímafrekri greiningarvinnu til að átta sig á því hvort verið sé að beita gullhúðun og þá að hvaða leyti. Það er nefnilega alls ekki alltaf þannig að um sé að ræða reglugerð sem innleidd er í heild sinni heldur er gildandi lögum gjarnan einfaldlega breytt til þess að uppfylla skilyrði gerðarinnar og þetta á eðli málsins samkvæmt oftar við um innleiðingu tilskipana, og ætla ég ekki að fara í neina sérstaka umfjöllun um muninn þar á hér, enda ekki ástæða til. En þá er auðvelt að leyfa öðrum bitum að fljóta með sem hafa jafnvel ekkert með EES-gerðina að gera. Það er því þannig að þingmenn eru kannski ekki með augun jafn opin í þessum málum og öðrum sem lögð eru fyrir þingið.

Ríkisstjórnin er meðvituð um þetta. Það hefur borið á því að ríkisstjórnin reyni að lauma inn í frumvörp um innleiðingu EES-gerða ákvæðum sem eiga þar ekki heima, væntanlega í einhverjum tilvikum í trausti þess að þingmenn setji það ekki ofarlega á sinn verkefnalista að kryfja umrætt lagafrumvarp ofan í kjölinn og leyfi því þess í stað bara að „slæda“, eins og unga fólkið segir. Eina ráðið sem þingið hefur er að óska eftir yfirliti frá ráðuneytunum um það nákvæmlega hvaða ákvæði feli ekki beinlínis í sér innleiðingu á EES-gerð. Þar erum við upp á ráðuneytið komin og verðum bara að treysta því sem þaðan kemur nema við förum í okkar eigin rannsókn sem, eins og fyrr segir, getur krafist mikillar vinnu. Þetta er auðvitað vandamál þar sem ráðuneytin eru alls ekki hlutlaus. Það eru þau sem eru að leggja fram sína pólitísku stefnumörkun í formi laga. Við erum ekki fyrst til að vekja máls á þeim áhyggjum að tilhneiging sé til að lauma, eins og það er orðað víða, umdeildum ákvæðum inn í mál af þessu tagi. Það er því greinarmunur á þessu tvennu, annars vegar þessari gullhúðun sem gengur út á það að við göngum aðeins lengra en við þurfum í því skyni að gera betur en við þurfum — ég held að það sé til góðs og ekki ástæða til að stemma stigu við því í einhverju prinsippi — og hins vegar því að verið sé að lauma ákvæðum með, sem er beinlínis óheimilt samkvæmt lögum.

Í skýrslu hæstv. ráðherra segir að ekki sé talin þörf á að breyta reglum um þinglega meðferð EES-mála né heldur lögum um þingsköp Alþingis heldur þurfi frekar að skerpa á framfylgni þeirra. Ég hef einmitt oft velt þessu fyrir mér síðan ég hóf störf hér á þingi: Hvað skal gera þegar ráðherrar einfaldlega fylgja ekki lögum? Það er svolítið snúið mál þegar búið er að koma hlutum þannig fyrir að það er í raun ríkisstjórnin sem gefur Alþingi fyrirmæli en ekki öfugt eins og stjórnskipan okkar gerir ráð fyrir. Þannig vinnur þessi ríkisstjórn að mörgu leyti og sá meiri hluti hér á þingi sem hana styður. Það er því miður eins og þingmenn meiri hlutans hér á Alþingi eigi það til að gleyma því að þau séu þjóðkjörnir fulltrúar á Alþingi Íslendinga en ekki bara skósveinar ríkisstjórnarinnar sem þau klöstruðu saman í upphafi þings. Ég hef haft áhyggjur af því í nokkurn tíma hvernig þessi ríkisstjórn starfar en ekki síður meiri hlutinn sem hana styður hér á þingi því að margt í þeirra vinnubrögðum tel ég hreinlega vera ógn við okkar stjórnskipan.

Það er nefnilega svo að stjórnarskráin okkar eins og hún er endurspeglar ekki vel stjórnskipunina sem við búum við. Ég heyrði raunar sagt frá aðstoðarkennara í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands fyrir nokkru, að hann segði nemendum sínum að lesa stjórnarskrána, sem er ekki nema rétt um fjórar til fimm blaðsíður þrátt fyrir tilkomumikinn titil. Að lestri loknum segði hann þeim að gleyma öllu sem þau hefðu lesið því að svona væri þessu alls ekki háttað í reynd. Okkar stjórnskipan byggist mikið á því sem kallað er stjórnskipunarvenja og njóta þær venjur rétthæðar nálægt stjórnarskránni sjálfri. En hvað gerum við ef á bátinn gefur og hér sest í stólana ríkisstjórn í skjóli hundhlýðins meiri hluta á þingi sem fer að hunsa þær venjur í stjórnskipan okkar sem eru stjórnarskránni til fyllingar þar til okkur auðnast sú gæfa að setja okkur stjórnarskrá sem er í fyrsta lagi í takti við þá stjórnskipan sem við búum við, eða teljum okkur búa við, nú þegar? En svo væri auðvitað frábært ef hún væri líka í takt við tímann en það er ekki aðalatriðið hér.

Forseti. Þetta var nú smáútúrdúr en samt ekki því að það sem við erum að ræða hér er einmitt tilhneiging ráðherra til að fara á svig við lög sem er auðvitað mjög alvarlegt mál almennt en til þess höfum við dómstóla þegar það gerist gagnvart borgurum landsins. En það hlýtur einnig að teljast alvarlegt þegar farið er á svig við lög gagnvart Alþingi sjálfu því að Alþingi hefur engin úrræði til að leita réttar síns önnur en að víkja frá ríkisstjórninni, sem er auðvitað meiri háttar mál og til margra þátta að líta áður en þingið tekur slíka ákvörðun. Þá er til þess að líta að hinn hlýðni meiri hluti hér á þingi virðist telja það sitt hlutverk fyrst og fremst að verja ríkisstjórnina og ráðherra hennar, sama hvað. En það hlutverk þeirra við að verja lýðræðið í landinu, hvað þá þær hugsjónir og markmið sem komu þeim í sæti kjörinna fulltrúa til að byrja með — þetta situr allt á hakanum. Það er auðvitað erfitt að bregðast við þeirri stöðu þegar ráðherrar fylgja einfaldlega ekki lögum og öðrum fyrirmælum Alþingis en sjálfsagt að fara þá leið, sem lagt er til í skýrslunni, að ítreka gildandi lög og fyrirmæli í starfsreglum ríkisstjórnarinnar, þar á meðal samþykktir hennar sjálfrar.

Hvað sem því líður, virðulegi forseti, vonast ég til þess að niðurstöður þessarar skýrslu verði til þess að ríkisstjórnin vandi betur til verka við undirbúning lagafrumvarpa sem lögð eru fyrir þingið í þessu sem öðru.