154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[15:43]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Þessi snyrtilega valkvæða samantekt sem hér liggur fyrir er í mínum huga þörf áminning um að við eigum að sýna meira frumkvæði í lagasetningu um eigin mál sem fullvalda þjóð í eigin landi þar sem aðstæður eru gjarnan frábrugðnar því sem annars staðar gerist, eða að við sýnum metnað og frumkvæði í lagasetningu sem eftir er tekið og getur orðið öðrum hvatning til góðra verka, ekki síst í umhverfis- og náttúruverndarmálum, að ráðherrar stari ekki í gaupnir sér og bíði eftir næstu tilskipun frá Brussel í stað þess að leggja sjálfir fram lagafrumvörp um þessi efni.

Hæstv. ráðherra. Það þarf ekki alltaf að bíða eftir Evrópusambandinu. Við erum frjáls og fullvalda þjóð. Við verðum að rísa upp úr þeim dróma og sýna meira frumkvæði í eigin lagasetningu um brýn hagsmuna- og réttindamál, svo sem í neytendavernd, náttúruvernd eða þar sem þjóðaröryggi okkar er undir, eins og með óheftum fjárfestingum útlendinga í orkuinnviðum. Eins og metnaðarfullur fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra og forveri þess hæstv. ráðherra sem hér situr, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, benti á má stundum ganga lengra en ESB, t.d. í umhverfismálum. Stundum má og er jafnvel æskilegt að hafa skoðanir umfram ESB og vilja gera betur. Afstaða sem kemur ekki á óvart, ráðherra þessa málaflokks hverju sinni er jú sá sem stendur í stafni náttúruverndar, verndunar vistkerfa og sjálfbærrar nýtingar auðlinda á Íslandi.

Í grafskrift þessarar samantektar er höggvið í sama knérunn og í nýlegum ummælum hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem hefur sagt grafalvarlegt hve algengt það er að stjórnvöld gangi lengra í löggjöf á sviði umhverfis- og loftslagsmála en lágmarkskröfur sem gerðar eru í Evróputilskipunum. Ef hæstv. ráðherra hyggst ráðast í frekari rýni á samningu lagafrumvarpa er hafa að markmiði að bæta löggjöf okkar í umhverfis- og loftslagsmálum, náttúruvernd og umhverfisrétti ætti hann einnig að horfa til þess hvar við höfum ekki staðið okkur nógu vel.

Réttur til heilnæms umhverfis sem grundvallarmannréttindi er dæmi um það. Hér á Íslandi hefur borið á því að aðgangur félagasamtaka, einstaklinga og fræðimanna að réttarúrræðum vegna málefna er varða umhverfið sé of takmarkaður. Megininntak Árósasamningsins er að tryggja réttláta málsmeðferð í umhverfismálum með bættu aðgengi að upplýsingum og með aukinni þátttöku almennings í ákvarðanatöku. Rétturinn til heilnæms umhverfis er undirstrikaður í upphafsorðum Árósasamningsins þar sem ofin eru saman grundvallarmannréttindi. Með samningnum er viðurkennt að sérhver manneskja eigi rétt til þess að búa í heilnæmu umhverfi sem mætir þörf hennar fyrir heilsu og velferð. Þá ber manninum skylda, einum og í samstarfi við aðra, til að vernda og hlúa að umhverfinu fyrir núverandi og komandi kynslóðir. Því hef ég lagt fram frumvarp sem miðar að því að tryggja aðgengi einstaklinga og félaga að réttarúrræðum vegna umhverfisins samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum og því að veita félögum aukinn aðgang að dómstólum að norrænni fyrirmynd.

Samkvæmt dómaframkvæmd fyrir tíð laga nr. 150/2011 gátu félög sem voru aðilar að stjórnsýslumáli leitað á náðir dómstóla til endurskoðunar á grundvelli 60. gr. stjórnarskrárinnar. Lög nr. 150/2011 hafa hins vegar ekki greitt þá leið. Þvert á móti virðast þau hafa hindrað aðgang félaga að dómstólum. Þetta verður að laga. Með frumvarpi mínu er leitast við að leiðrétta það og auka samræmi milli réttarstöðu samtaka og einstaklinga og 60. og 70. gr. stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra skuldbindinga Íslands samkvæmt Árósasamningnum og EES-rétti. Með innleiðingu Árósasamningsins hefur Ísland skuldbundið sig til þess að virða markmið samningsins um að stuðla að vernd réttar einstaklinga og framtíðarkynslóða til að lifa í umhverfi sem stuðlar að góðri heilsu og velferð þeirra. Tryggja þarf betur í íslenskri löggjöf ákvæði Árósasamningsins. Ef frumvarp þetta verður að lögum erum við að stíga skrefið í þá átt.

Rétturinn til heilnæms umhverfis eru grundvallarmannréttindi. Hér getum við einu sinni gengið upp úr því fari að bíða eftir Evrópusambandinu. Fullvalda Ísland getur einnig horft til Norðurlandanna sem hafa staðið sig betur í að fullgilda Árósasamninginn og réttindin sem í honum felast fyrir okkur öll og náttúruna meðtalda. Heiti ég á hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að sýna hér að honum renni blóðið til skyldunnar í þessu embætti með því að leggjast á árarnar með að það frumvarp fái brautargengi hér á þessu þingi.