154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[15:57]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir að koma hingað og kynna skýrsluna sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins óskuðum eftir um innleiðingu EES-reglna í Landsrétt, gullhúðunar- eða blýhúðunarskýrsluna. Niðurstöður skýrslunnar eru auðvitað sláandi. Það er fullkomlega óásættanlegt að hér skulum við innleiða EES-reglur með meira íþyngjandi hætti en við þurfum, ganga lengra í yfir 40% tilvika. Í skýrslunni kemur fram að það séu engar vísbendingar um að þessum tilvikum fari fækkandi. Úttekt dr. Margrétar Einarsdóttur á þessu málefnasviði er góð vísbending um stöðuna í öðrum ráðuneytum. Ég held áfram að hvetja hæstv. ráðherra til að taka til í sínum ranni. Það er ekki ólíklegt að ég fylgi því eftir hér í þinginu enda sérstakur áhugamaður um blýhúðun.

Við þingmenn höfum sumir reynt að spyrna fótum við reglusetningargleði íslenskra stjórnvalda og gert ítrekaðar tilraunir til að koma skikki á framkvæmd innleiðingar EES-reglna. Framkvæmd sem lýst er í blýhúðunarskýrslunni fer í bága við lög um þingsköp Alþingis og reglur um þinglega meðferð EES-mála. Skýrslan greinir m.a. frá því að mikill misbrestur sé á því að tilgreint sé þegar meiri kröfur eru gerðar í frumvarpi en EES-gerð við innleiðingarlöggjöf og að rökstuðningur fylgi slíkri ákvörðun. Ég gef því lítið fyrir tal þeirra sem fagna reglusetningargleðinni og því að við höfum verið að leggja auknar byrðar á íslenskt atvinnulíf og almenning. Það er algjört lágmark að standi það til sé það tekið skýrt fram. Annað er hreinlega brot á lögum um þingsköp Alþingis og reglum um þinglega meðferð EES-mála. Þetta var í raun mitt fyrsta verk sem nýr formaður utanríkismálanefndar Alþingis, að senda hæstv. ráðherrum okkar bréf og brýna þá með þetta, en utanríkismálanefnd hefur yfirumsjón með umfjöllun nefnda Alþingis um EES-mál. Eftir að niðurstöður blýhúðunarskýrslunnar urðu opinberar sendi ég erindi til forsætisnefndar þingsins og hvatti til þess að brugðist yrði við tillögum dr. Margrétar í skýrslunni. Við þingmenn Sjálfstæðisflokksins fylgdum þessu svo eftir með tillögu til þingsályktunar um þinglega meðferð EES-mála til að undirstrika enn frekar vilja þingsins og afstöðu til blýhúðunar. Og af því að hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir minntist á ályktunina bendi ég henni á að orðalag ályktunarinnar að jafnaði er einmitt til þess fallið að mæta þeim tilvikum þegar kann að vera ástæða til að ganga lengra en lágmarkskröfur EES-skuldbindinga kveða á um, eins og farið er yfir í greinargerð með ályktuninni, og sérstaklega talin til tilvik þar sem einstaklingum eða lögaðilum er tryggður betri eða meiri réttur en annars. Það breytir þó engu um það að lög um þingsköp og þinglegar reglur um meðferð EES-mála gera kröfu um að athygli sé vakin á þessu, hvort heldur sem um er að ræða ívilnun eða þyngri kröfur.

En aftur að skýrslunni, virðulegi forseti. Samtök iðnaðarins hafa vakið athygli á óásættanlegum vinnubrögðum hérlendis við innleiðingu EES-reglna. Þetta verklag bætist ofan á umkvartanir þeirra félagsmanna um aukið og þyngra regluverk og eftirlit sem hefur neikvæð áhrif á fólk og fyrirtæki. Samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir samtökin segja 77% stjórnenda regluverk og eftirlit hafa aukist mikið undanfarinn áratug. Það er sorgleg þróun að við skulum vera að kaffæra rekstraraðila í óhóflegum kröfum og eftirliti. Það bitnar einna helst á litlum og meðalstórum fyrirtækjum og leiðir til sóunar og minni framleiðni.

Aðeins um viðbrögð við blýhúðunarskýrslunni. Hæstv. ráðherra greindi strax frá því eftir útgáfu skýrslunnar að vinna yrði sett af stað við endurskoðun á innleiðingu á EES-gerðum, vinna við afhúðun. Hæstv. ráðherra fór yfir þetta hér áðan. Með því leggur hann áherslu á að færa löggjöf sem undir hann heyrir af EES-gerðum nær því sem gerist í ESB. Þannig yrði regluverkið hér ekki meira íþyngjandi en í ESB sem er einmitt markmiðið með því að taka þátt í einsleitum EES-markaði. Hæstv. ráðherra hefur sömuleiðis tekið undir tillögur skýrsluhöfunda um að stjórnarfrumvörp verði sett þannig upp að sérstakur kafli verði í greinargerðum stjórnarfrumvarpa um útfærslu á viðkomandi EES-innleiðingu. Með því væru þingmenn mun betur upplýstir um frávik frá EES-reglum við innleiðingu í íslensk lög. Vonandi hafa aðrir hæstv. ráðherrar sömuleiðis tekið vel í þessar tillögur. Hæstv. ráðherra má alla vega búast við eftirfylgni frá mér héðan úr þinginu, hvort hann sé ekki örugglega að reyna að vinda ofan af þessu hér. Niðurstöður skýrslunnar gefa fullt tilefni til sambærilegrar rannsóknarvinnu og viðbragða í öðrum ráðuneytum en umhverfisráðuneytinu, eins og áður sagði. Hæstv. utanríkisráðherra skipaði starfshóp um aðgerðir gegn blýhúðun sem lætur vonandi til sín taka.

Við þingmenn ættum að veita stjórnvöldum ríkt aðhald, ekki bara varðandi framhaldið og betri vinnubrögð heldur líka varðandi afhúðun, að regluverk sem þegar hefur verið þyngt verði fært til samræmis við evrópska löggjöf. Það er mikilvægt að ekki sé gengið lengra við innleiðingu EES-gerða en þörf er á. Innlend fyrirtæki og neytendur eiga að sitja við sama borð og aðrir á innri markaði ESB. Auk þess koma íþyngjandi og óskilvirkar reglur sem eru sagðar stafa frá EES-samningnum óorði á samninginn. Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson kom inn á áðan; heimatilbúinn vandi sem bætist þá við endalausa hugmyndaauðgi ESB um regluvæðingu um allt milli himins og jarðar. Það er löngu kominn tími á samstillt átak um að bæta samkeppnishæfi Íslands. Þessi skýrsla er mikilvægt innlegg inn í þá umræðu.