,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.
Virðulegi forseti. Mig langar í seinni ræðu minni að koma inn á atriði sem ég tel merkilegt og vil líka svara því sem hér kom fram áðan. Varðandi innleiðingu EES-reglna þá er Brussel enginn sökudólgur. Talað var um að Brussel væri sökudólgurinn og að andstæðingar ESB og EES væru alltaf að horfa til Brussel. Ég tek fram að ég er fylgjandi EES-samningnum. Ég tel bara að við eigum að standa rétt gagnvart samningnum. Það þurfum við að gera heildstætt frá sérfræðinganefndunum þar sem verið er að semja EES-reglurnar í Brussel. Þar þurfum við að gæta hagsmuna okkar og sjá til þess að ESB hafi líka samningsskyldur gagnvart EES-svæðinu og taki tillit til stöðu okkar. Það þarf líka að gera í sameiginlegu nefndinni þannig að við séum ekki að taka upp reglur í samninginn sem eiga ekki við um okkur. Ég get tekið dæmi. Í öðrum orkupakka tókum við upp reglur um gas, gastilskipanirnar, en ekki í þriðja orkupakkanum. Hvernig stendur á því? Við þurfum að gæta hagsmuna okkar þar, hafa stjórnskipulega fyrirvara og líka varðandi gullhúðun.
Ég get ekki annað en minnst á bókun 35. Um hvað fjallar bókun 35? Hún fjallar um það að lög sem eiga uppruna sinn í Brussel gangi framar íslenskum lögum þegar kemur að lagatúlkun; það er forgangsreglan sem er í bókun 35. Ég vil meina að þetta hafi verið afgreitt fyrir 30 árum síðan með 3. gr. EES-laganna. Hér erum við hins vegar að fjalla um það þegar íslensk lög ganga lengra en tilskipanirnar. Af hverju setjum við þá ekki bara reglur um það, löggjöf, að þegar íslensk lög ganga lengra en tilskipanir ESB þá hafi þau lög ekki gildi, þau ákvæði? Öfugt er farið með bókun 35. Það er hin hliðin á peningnum, þegar við göngum skemmra og einstaklingar missa rétt. Þeir geta þá farið í skaðabótamál, eins og kom fram í nýlegum hæstaréttardómi, en það sýnir að við eigum ekki að löggilda bókun 35.
Það er vandfarið með innleiðinguna á EES-reglunum. Það er vandlifað í þessum heimi en það er ekki svo vandlifað að við eigum ekki að geta staðið í lappirnar gagnvart EES-samningnum og séð til þess að þegar við samþykkjum löggjöf á Íslandi gangi það ekki gegn EES-samningnum. Við eigum líka að sjá til þess að við séum ekki að ganga lengra án þess að vita það a.m.k. Það er grundvallaratriði. Reglurnar eru þannig að það þarf að tilgreina og rökstyðja. Það hefur ekki verið gert nægilega eins og hér hefur margoft komið fram. Þessi umræða sýnir líka öðrum þræði að það að setja bókun 35 í lög, þegar við göngum skemmra en EES-reglurnar ganga lengra — í fyrsta lagi brýtur það gegn stjórnarskránni og sýnir að það er engin patentlausn á þessum málum. Við þurfum að standa í lappirnar í hverju máli fyrir sig, sjá til þess að við göngum ekki gegn EES-samningnum í löggjöf og við eigum líka að sjá til þess að við göngum ekki lengra. Við eigum að virða samninginn hvað okkur varðar þegar kemur að hagsmunum okkar og staðsetningu í heiminum, svo einfalt er það. Og við eigum að horfa heildstætt á þetta, frá upphafi reglnanna til innleiðingar á Íslandi. Það verður að vera heildarstefna frá sérfræðinganefndinni, frá tilvist laganna og þangað til þau eru lögfest algerlega. Þetta aga- og stefnuleysi sem hefur verið við framkvæmd EES-samningsins mun á endanum leiða til þess að EES-samningurinn siglir í strand. Það er alveg kristaltært, af því að hann verður að taka tillit til íslenskra hagsmuna, hvort sem það eru loftslagsmálin, raforkumálin, umhverfismálin eða önnur. Við þurfum sjálf að sjá til þess að við uppfyllum skyldur samningsins og að við gerum það rétt, göngum ekki of langt og ekki of skammt. Það er það sem við þurfum að gera í hverju einasta máli fyrir sig. Ekki á að láta bókun 35 vera einhverja svona patentlausn fyrir okkur. Við hefðum aldrei nokkurn tíma samþykkt EES-samninginn ef bókun 35 hefði verið í lögunum, það hefði ekki verið þingmeirihluti fyrir því.
Þetta er mál sem við þurfum að vera vakandi fyrir. Ég veit ósköp vel að það er ekki hægt að setja einhverjar reglur sem eru eiginlega hin hliðin á peningnum hvað lýtur að bókun 35, að þegar við göngum lengra þá gildi þau ákvæði ekki. Að sjálfsögðu er það ekki hægt. Ég vildi bara koma því að að við verðum að taka aðild okkar að samningnum föstum tökum og lagaframkvæmd sem henni fylgir og vanda til verka. Íslensk stjórnsýsla er veikburða en þetta er málaflokkur sem við verðum að taka á ef við ætlum ekki að vera í endalausri ólgu þegar kemur að umræðu um EES-samninginn.