154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[16:17]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur kærlega fyrir að hafa snúið aftur í pontu til að koma með þetta mikilvæga innlegg. Þótt ég freistist til þess, fyrst ég er komin hingað upp, að svara hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni varðandi bókun 35, sem snýst einmitt um að tryggja að ekki sé gengið í berhögg við réttindi sem við eigum samkvæmt EES-samningnum — þetta bíður betri tíma auk þess sem við erum nýbúin að eiga orðastað um þetta hér í þingsal.

Eins og ég kom inn á áðan er úttektin augljóslega góð vísbending um það sem er í gangi í öðrum ráðuneytum. Ástæðan fyrir því að ég valdi bara eitt ráðuneyti var einfaldlega sú að ég hafði heyrt ávæning af því að dæmi væru um þetta á þessu sviði og það var eiginlega kostnaðarástæða. Ég ákvað að velja eitt ráðuneyti til að byrja með og sjá hvað kæmi út úr því. Niðurstöðurnar eru, eins og við höfum mörg komið inn á hér í dag, sláandi þannig að það er full ástæða, að ég tel, fyrir önnur ráðuneyti til að gera sambærilega könnun í sínum ranni. Ég vonast auðvitað til þess að viðkomandi ráðherra geri það. Hæstv. utanríkisráðherra er, eins og ég kom inn á, þegar búinn að skipa starfshóp sem er að gera heildstæða úttekt á því vandamáli sem gullhúðun eða blýhúðun er. En ég geri fastlega ráð fyrir því að fylgja þessu eftir hér í þinginu með einum eða öðrum hætti.