154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[16:23]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vona að hv. þingmaður hafi lesið bókun 35. Hún hefur legið fyrir í 30 ár. Þetta mál hefur legið fyrir í 30 ár og allir vitað hvert vandamálið var, allir. Það átti að leysa það með 3. gr., með samræmisskýringu við EES-samninginn. Það er meira að segja á bls. 2 vitnað í frægasta hæstaréttardóm Íslandssögunnar frá 9. janúar 1990 þar sem dómstólakerfi landsréttar var tekið úr sambandi með samræmisskýringu í mannréttindasáttmála Evrópu. Það sem er hérna undir er þetta: Varðandi dóm Hæstaréttar Íslands þá segir hann ekki að það þurfi að lögleiða bókun 35, hann gerir það ekki. Hann fjallar um reglurnar lex posterior, lex superior og lex specialis, þ.e. að æðri lög ganga framar lægri, yngri lög ganga framar eldri og sérlög ganga framar almennum lögum. Hann tekur þrjú dæmi um forgangsröðun í íslenskum lögum. Jú, það eru lögin um lagaskil á milli landa. Þá er forgangsregla um það að alþjóðlegu lögin gangi lengra. Það eru lög um alþjóðlegt bókhald fyrirtækja. Þá að sjálfsögðu ganga hinar alþjóðlegu reglur lengra en íslensku lögin, annars væri það ekki alþjóðlegt bókhald. Önnur líka varðandi Montreal-samkomulagið um flugið. Þá ganga alþjóðalög flugreglna lengra í alþjóðlegu flugi á Íslandi. Svo einfalt er það. Svo segir Hæstiréttur líka að það sé forgangsregla í bókun 35 og það hafi verið leyst með 3. gr. og líka það að borgararnir geti farið í skaðabótamál sé réttur þeirra brotinn. Það er röng túlkun að halda því fram að þessi hæstaréttardómur sé einhver skilaboð til Alþingis um að við verðum að samþykkja bókun 35. Það bara er ekki þannig.

Hæstiréttur sendi fín skilaboð til okkar um daginn varðandi kynferðisafbrot þegar brotaaðili er ekki staðsettur á staðnum, þetta er í gegnum netið. Þá fengum við skýr skilaboð. En það eru engin skilaboð í þessum fæðingarorlofsdómi, ekki nokkur einustu.

Ég bara vona að hv. þingmaður standi í lappirnar eins og aðrir Sjálfstæðisþingmenn og standi undir nafni sem þingmaður flokks sem kennir sig við sjálfstæði og hafni því að lögfesta bókun 35 eins og var gert fyrir 30 árum síðan. Það var það sem spurningin snerist um, vegna þess að Alþingi (Forseti hringir.) á að slá þetta mál strax út af borðinu og halda áfram að lifa, (Forseti hringir.) við höfum virt þennan samning miklu betur en Norðmenn, miklu betur. (Forseti hringir.) Þar bendi ég á NAV-málið þar sem 80 manns fóru í fangelsi (Forseti hringir.) og 2.500 manns þurftu að endurgreiða bætur sem þeir oftóku.