154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

,,Gullhúðun" við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022.

619. mál
[16:26]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvar. Mér finnst leiðinlegt að hæstv. umhverfisráðherra sé kominn í svona mikið aukahlutverk hérna í dag. Ég veit að hann þolir það ekki. En hv. þingmaður vonar að ég hafi lesið bókun 35. Ég segi bara á móti: Ég vona að hv. þingmaður viti að bókun 35 hefur þegar verið lögfest í íslensk lög og er hluti af íslenskri löggjöf, af því hann margtyggur hérna að við þurfum að standa í vegi fyrir lögfestingu bókunar 35. Ég átta mig bara ekki á því hvert hv. þingmaður er að fara, (Gripið fram í.) bókun 35 er hluti af íslenskum lögum. Hæstiréttur segir hreinlega (Gripið fram í.) — þessi dómur sem hv. þingmaður hefur nú sérstaklega prentað út fyrir mig og ég er reyndar með í tölvutöskunni hjá mér, þar segir hreinlega að löggjöf Íslands sé ófullnægjandi til að tryggja Íslendingum rétt samkvæmt EES-samningnum. Mér finnst óásættanlegt að Íslendingar eigi að þurfa að búa við það að sækja sér bætur af þeim sökum, eins og mér heyrist hv. þingmaður leggja til að eigi að vera niðurstaðan, að ef stjórnvöld brjóti á okkar rétti samkvæmt samningnum þá eigum við hreinlega bara að sækja bætur eins og viðkomandi einstaklingur sem var móðir í fæðingarorlofi virðist þurfa að gera. Mér finnst það óásættanleg staða. Við eigum að njóta fullra réttinda samkvæmt EES-samningnum, gera um það ríka kröfu, og ég vil að við þingmenn bregðumst við því með því að leita leiða til að lagfæra löggjöfina. (Gripið fram í.)