154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

kvikmyndalög.

486. mál
[16:45]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Þetta er mjög gott mál og mikilvægt. Þegar maður kynnir sér það sem gerist fjárhagslega fyrir okkar samfélag þegar kvikmynda- og sjónvarpsefni er vel styrkt og fær að blómstra, þegar þessi iðnaður fær að blómstra, þá áttar maður sig á því að í raun er ekki rétt að tala um Kvikmyndamiðstöð t.d. sem styrkjamiðstöð og þetta kerfi sem styrkjakerfi. Við ættum í rauninni frekar að vera að tala um fjárfestingarsjóð eða fjárfestingarmiðstöð.

Mig langar að taka nokkur dæmi. Sakamálaþættirnir True Detective eyddu 16 milljörðum á Íslandi við gerð þáttaraðanna. Heimsfræga leikkonan Jodie Foster er örugglega ekki á lágum launum og hún greiddi tekjuskatt á Íslandi og það gerðu aðrir leikarar. Framleiðendur myndarinnar fengu 4 milljarða til baka frá ríkinu úr endurgreiðslukerfi sem er þannig að ríkissjóður borgar til baka 25% af þeim peningum sem eytt er á Íslandi í kvikmyndagerðina að frádregnum öllum styrkjum sem hafa verið veittir af hálfu ríkisins.

Mig langar að taka annað dæmi um litla kvikmynd sem er í vinnslu. Hún fær 10 milljónir úr Kvikmyndasjóði, kostar 28 milljónir sem eru peningar sem varið er innan lands. Hún er að öðru leyti fjármögnuð af hálfu fyrirtækja og stofnana og erlendra sjóða. Gagnvart endurgreiðslukerfinu eru allir opinberir peningar dregnir frá. Af restinni fá framleiðendur 25% endurgreitt sem er af 18 milljónum í þessu tilviki. Uppgjörið fer fram í lokin og ekkert fæst endurgreitt af því sem er skuldað. Það þarf allt að vera í skilum. Það er áhugavert að sjá að þarna erum við raunar með eftirlit sem virkar. Það er gott og virkt eftirlit með því hvert peningarnir fara og þurfa framleiðendur að sýna fram á það að skulda heldur ekki krónu í ríkissjóð.

Þetta frumvarp er gott. Ákveðnir þættir í því lúta að því að laga ákveðna núansa en aðalmálið snýst auðvitað um það að stofna sjóð til þess að hjálpa framleiðendum á lokametrunum, það er þessi lokafjármögnun sem er svo erfið. Það er þar sem fólk er að veðsetja húsin sín, til að koma skipinu í höfn. Um leið á þessi styrkur að stuðla að og hjálpa til við dreifingu á efninu um allan heim, selja það m.a. sjónvarpsstöðvum.

Þess má geta að Verbúðin, sem ég held að sé mjög skýrt dæmi um það hversu mikilvægur kvikmyndaiðnaðurinn á Íslandi er til verndar okkar menningu og sögu, fór um allan heim. Segjum að við framleiðum þætti eins og Verbúðina, þar sem skrifað er um mjög mikilvæga og áhugaverða þætti í íslenskri sögu, hún er seld um allar trissur, segjum að hún fái 10 millj. kr. úr þessum sjónvarpssjóði, skilar bullandi hagnaði; þá þurfa þau að skila peningunum. Það er sannarlega aldrei borgaður til baka nema hluti af hagnaði og aldrei meira en þau fengu.

Í ljósi þess að okkur finnst svo gaman að bera okkur saman við önnur lönd, alla vega á tyllidögum, þá má geta þess að þetta módel er úr Norræna sjónvarps- og kvikmyndasjóðnum þar sem við erum sérstaklega öflug. Við erum öflug í framleiðslu sjónvarpsefnis, „stórasta land í heimi“ í þessu sem ýmsu öðru, og fáum þar með hlutfallslega meira en aðrir úr Norræna sjónvarps- og kvikmyndasjóðnum. En þetta módel kemur þaðan.

Það sem skiptir miklu máli varðandi þetta mál er það sem hefur komið fram í máli hv. framsögumanns nefndarinnar, sem hefur líka komið fram í umsögnum um málið, þ.e. að tryggja það að fjárframlög fylgi þessum nýja styrkjaflokki eða þessum nýja fjármögnunarflokki, ætla ég að leyfa mér að segja. Ég ætla að lesa upp úr umsögn Sambands íslenskra kvikmyndagerðarmanna, með leyfi forseta, en þar er ítrekað mikilvægi þess að nýjum styrkjaflokki fylgi fjárframlög.

„Þannig er nauðsynlegt að tryggð verði heimild til hækkunar á fjárlögum til Kvikmyndasjóðs til þess að nýr styrkjaflokkur teljist raunhæfur. Að óbreyttu gengur nýr styrkjaflokkur á önnur verkefni innan sjóðsins.

Alla jafna er það mat SÍK að efnistök frumvarpsins hvað varðar nýjan styrkjaflokk sé afar jákvætt skref sem tekur mið af knýjandi þörf innan greinarinnar og þá sérstaklega þegar horft er til framtíðar. Fagnar SÍK tilkomu þessa frumvarps en ítrekar eftir sem áður tryggingu á fjármögnun þess.“

Í áliti allsherjar- og menntamálanefndar er þetta orðað svo, með leyfi forseta:

„Nefndin tekur undir það og beinir því til ráðuneytisins að leitast verði við að nýr styrkjaflokkur komi ekki niður á öðrum verkefnum.“

Fyrir mitt leyti, virðulegi forseti, þá verð ég að segja að mér finnst ekki nógu sterkt til orða tekið þarna til þess að tryggja að þessi nýi fjárfestingarflokkur, styrkjaflokkur, verði ekki til þess að rýra önnur hlutverk sjóðsins, sem er gríðarlega mikilvægt því að þá hjálpar þetta ekkert. Þá er bara verið að minnka kökuna. Þetta þurfa að vera auknir peningar. En við megum ekki gleyma því að það er fjárfesting, ekki kostnaður. Samkvæmt beinhörðum útreikningum og gögnum frá sjálfu ráðuneytinu þá kemur hver króna þreföld til baka inn í hagkerfið sem fer í kvikmyndagerð. Það er búið að reikna þetta margoft út og þetta er auðvitað í ofanálag við listrænt og menningarlegt og sögulegt gildi kvikmyndaiðnaðarins. Kvikmyndaiðnaðurinn skapar óteljandi störf fyrir ýmsar stéttir, kokka, ræstingafólk, kennara, hjúkrunarfólk, leikara, leikstjóra, myndatökumenn, hljóðmenn, lögfræðinga og í dag ber styrkþegum að sýna hvernig þau muni haga störfum sínum á fjölskylduvænan og umhverfisvænan hátt. Samfélagsábyrgðin er mikil. Þetta er gott og mikilvægt mál en við þurfum að passa okkur á að gleyma ekki forsendunum.

Að lokum langar mig til þess að vekja athygli á umsögn Kvikmyndasafns Íslands, sem var líka sannarlega nefnd hér áðan í máli framsögumanns nefndarinnar, varðandi það að samhliða þessari styrkveitingu verði styrkþegum skylt að skila efninu til Kvikmyndasafns Íslands. Það finnst mér góð hugmynd. Mér þætti eðlilegt að setja það inn í lögin sömuleiðis. Nefndin leysir það í raun með því að vísa til ákvæða sem nú þegar eru í safnalögum um heimild safna til að krefjast dagsekta ef handhafar efnis eða framleiðendur efnis standa ekki skil á því sem þeim ber til safnsins. Ég held að jákvæður hvati væri líklegri til árangurs sem væri í raun þannig að um leið og búið er að skila efninu þá færðu styrk. Það er þannig að þarna getur verið um að ræða 5 eða 10% af lokaupphæðinni og það munar alla um það. Ég veit að þessu dagsektarúrræði sem er í núgildandi lögum er lítið beitt, enda er það kannski ekki á söfnin sjálf leggjandi að vera að beita slíkum refsikenndum úrræðum og mun fremur að ábyrgðin sé sett annars staðar. Ég hvet því þingmenn og kannski sérstaklega hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að skoða það betur að ganga lengra í því að svara þessu kalli Kvikmyndasafns Íslands sem er gríðarlega mikilvægt.

Ég ætla hér að lokum að játa að ég áttaði mig ekki á því hversu hætt er við því að menningararfur tapist bara fyrir gleymsku fyrr en ég fór sjálf að leita að sjónvarpsefni sem er þó ekki svo gamalt. Það er um 15–16 ára gamalt efni, þegar tæknin var orðin þannig að þetta fannst á netinu á sínum tíma, efni sem var á Skjá 1. Þegar til kastanna kom árið 2022 að finna þetta efni, grafa það upp að nýju, þá var það þrautin þyngri. Þá var þetta farið af netinu þar sem sjónvarpsstöðin er ekki lengur til, og hver var að passa upp á að það yrði geymt? Það er nefnilega ekki eingöngu þannig að menningararfur tapist vegna þess að fólk áttar sig ekki á gildi hans. Ég held að það sé ekki vandamálið. Vandamálið er að við erum kannski ekki nógu meðvituð um það á þeim tímapunkti þar sem efnið er aðgengilegt okkur, það er jafnvel úti um allt, til á spólu í hverju húsi eða annað. Það er ekki fyrr en fram líða stundir sem við áttum okkur á því að það þarf meðvitað að gæta þess að efni geymist. Með þeim samningi sem nú er í gildi á milli Kvikmyndasafns Íslands og annarra aðila, um að þau skili efni til safnsins, hefur orðið bylting þarna á og framleiðendur eru að skila efni til kvikmyndasafnsins. Ég tel það til góða. Það er ljóst að þetta er hægt og þetta er ekki mjög íþyngjandi. Ég tel að dagsektir séu mun meira íþyngjandi og kannski svona neikvæðri nálgun á þetta. Og aftur hvet ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að skoða þetta enn frekar. Að öðru leyti fagna ég þessu máli og styð það heils hugar.