154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

stjórnsýslulög.

787. mál
[17:04]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna. Hér er um að ræða mál sem kannski er stutt á blaði og virðist smátt en er svolítið stærra þegar við förum að greina það og það mun hafa áhrif á úrlausn mála fyrir borgarana í landinu. Í frumvarpinu felst sem sagt þessi grundvallarbreyting að í stjórnsýslulög verði bundin heimild fyrir sjálfstæðar stjórnsýslunefndir sem fást við úrlausn stjórnsýslukæra að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. Eins og hæstv. forsætisráðherra sagði hafa þessar sjálfstæðu stjórnsýslunefndir ekki haft þessa heimild í lögum til að leita ráðgefandi álits þar sem slík heimild er samkvæmt lögum aðeins bundin við dómstóla.

Eins og ég segi þá vekur þetta frumvarp upp ýmsar spurningar og það er mikilvægt að í nefndinni verði farið vel yfir það hvernig þær breytingar sem felast í frumvarpinu spili saman við EES-reglur og stjórnsýslulög svo að ekki sé lengra gengið en tilefni er til og það sé þá ljóst hvaða nefndir það eru sem þarna falla undir. Hæstv. forsætisráðherra fór yfir þær sem taldar eru upp en segir svo að nefnd geti haft þessa heimild þó að hún sé ekki talin upp í þessu frumvarpi, hvort ekki sé mikilvægt að skoða þetta betur og hvort ekki sé tilefni til að setja svo einhver skýr og sérstök fyrirmæli um það hvenær þessa álits er leitað. Eins að það fari fram greining á því hvaða áhrif breytingarnar munu í raun og veru hafa fyrir aðila sem sækja sinn rétt og eru í stjórnsýslumáli og -meðferð í heild sinni.

Mig langaði bara að forvitnast hvort hæstv. forsætisráðherra taki ekki undir það að nefndin skoði þessi mál gaumgæfilega og það verði farið almennilega yfir það hvaða nefndir þetta eru og þessa hluti sem ég nefndi.