154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

stjórnsýslulög.

787. mál
[17:06]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir andsvarið. Það auðvitað hefur ekki verið, bara svo að það sé algjörlega á hreinu, einhugur um það hvort stjórnsýslulögin standi í raun og veru í vegi fyrir því að stjórnsýslunefnd geti leitað ráðgefandi álits. Um þetta hafa fræðimenn ekki verið sammála en á sama tíma sjáum við það hins vegar í úrskurðarframkvæmd fleiri en einnar stjórnsýslunefndar að viðkomandi nefnd telur sig ekki hafa heimildina til að leita ráðgefandi álits. Það er því ekki eins og um þetta hafi ríkt fullkomin vissa hingað til, af því að hv. þingmaður veltir því upp hvort hér sé ákveðin óvissa um fjölda nefnda sem þetta gæti mögulega náð til. Ég leyfi mér að benda hv. þingmönnum á að um það er bara óvissa núna og við sjáum það sem sagt í úrskurðarframkvæmdinni, til að mynda hjá úrskurðarnefnd í umhverfis- og auðlindamálum þar sem hún hefur komist að niðurstöðu um það í sínum úrskurðum að hún hafi ekki þessa heimild. Við teljum hins vegar að þarna séu þessar nefndir helstar taldar í greinargerð með frumvarpinu. En í ljósi þess að þetta hefur verið mismunandi milli nefnda — við getum bara séð það að eina nefndin sem hefur leitað ráðgefandi álits hingað til er sú stjórnsýslunefnd sem hefur fengið þessa heimild með pósitífum hætti í lögum. Ef við teljum að hér sé verið að setja nokkuð skýran lagaramma um þetta þá skiptir það auðvitað máli hvernig lögskýringargögnin eru úr garði gerð þannig að ég tel að óvissan verði heldur minni verði þetta frumvarp að lögum um mögulega framkvæmd á þessu.