154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

stjórnsýslulög.

787. mál
[17:10]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Svo að ég haldi aðeins áfram með fyrri fyrirspurn eða fyrra andsvar hv. þingmanns þá er hér í greinargerð frumvarpsins, eins og hv. þingmaður bendir á, listi yfir þær kærunefndir sem þetta frumvarp kann að snerta. En ástæða þess að við teljum að þetta verði ekki með tæmandi hætti talið er að það er EFTA-dómstóllinn sem skilgreinir hvaða skilyrði þurfi að uppfylla og því er það ekki eingöngu í höndum okkar hér að skilgreina það hvaða nefndir kunni að heyra undir heldur er þetta ákveðið samspil við EFTA-dómstólinn.

Hv. þingmaður nefnir svo það sem ég ræddi í minni framsögu um mögulegar tafir. Í fyrsta lagi tel ég það vera rökrétt að sjálfstæðar stjórnsýslunefndir sem leysa úr kærumálum standi jafnfætis dómstólum til að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins. Þar sem sú heimild hefur verið fyrir hendi, bæði hjá dómstólum og hjá kærunefnd útboðsmála, hefur þessi heimild ekki verið misnotuð í merkingunni að hún hafi oft verið notuð. Eins og ég nefndi áðan þá var þetta að mig minnir tvisvar á tíu árum og það er eingöngu í flóknum málum sem þessi valkostur kemur upp. Ef við hugsum um þetta sem réttarbót, því að ég lít á þetta mál sem réttarbót, að ef ráðgefandi álits hefur verið aflað í máli sem er fordæmisgefandi þá bæði einfaldar það úrlausn þeirra mála sem kunna í framhaldinu að koma upp og dregur úr líkum á að þetta mál fari til dómstóla þar sem mögulega þess álits verður svo aflað síðar meir og með tilheyrandi töfum á því stigi.

Ég vil líka nefna það að mörg þeirra mála sem sjálfstæðar stjórnsýslunefndir fjalla um koma ekki til kasta dómstóla, ýmist vegna þess að aðilar máls hafa ekki þau fjárráð sem nauðsynleg eru til að reka mál fyrir dómstólum eða vegna þess að þeir fjárhagslegu hagsmunir sem eru undir í málinu eru of litlir til að slíkur rekstur svari kostnaði. Ég segi (Forseti hringir.) að þó að þær aðstæður séu fyrir hendi dregur það ekki úr mikilvægi þess að reglur EES-réttarins séu virtar. Þannig að mér finnst þetta vera (Forseti hringir.) réttarbót. En að sjálfsögðu er mikilvægt að þingnefndin skoði þetta (Forseti hringir.) og hvaða áhrif þetta getur mögulega haft á málsmeðferðartíma einstakra mála.