154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

stjórnsýslulög.

787. mál
[17:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur andsvarið. Eins og ég kom aðeins að í framsögu minni hefur venjan verið sú að nefndir hafa ekki verið að óska eftir ráðgefandi álitum og við getum rætt það hér hvaða ályktun við drögum af því. En ég get nefnt a.m.k. eitt annað dæmi og það er áfrýjunarnefnd neytendamála. Hún komst að þeirri niðurstöðu að hún gæti ekki aflað ráðgefandi álits, hún úrskurðaði ekki sérstaklega um það en hafði hug á því að leita eftir slíku áliti og ákvað að gera það ekki því að hún taldi að heimildin væri ekki skýr. Ég myndi telja að þær nefndir sem mest eru að fást við EES-reglur séu þær nefndir sem líklegastar eru til að hafa hug á að leita eftir slíku áliti og það á svo sannarlega við um áfrýjunarnefnd neytendamála. En eins og kemur fram hér í listanum eru allnokkrar af þeim nefndum sem þar eru taldar upp fyrst og fremst að fást við EES-mál en hjá öðrum nefndum er þetta miklu fjölbreyttara. Það eru ekki síst þær nefndir sem mest hafa verið að fást við EES-mál þar sem þessi mál hafa komið upp. Einhver ástæða er væntanlega fyrir því að nefndir almennt hafa ekki verið að óska eftir þessum ráðgefandi álitum. Þó að þetta sé ekki einhlítt þá virðist það vera hin ráðandi túlkun að þeim sé það ekki heimilt. Og það skýtur stoðum undir það að löggjafinn hafi talið nauðsynlegt á sínum tíma að orða þessa heimild með pósitífum hætti hjá kærunefnd útboðsmála.