154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

stjórnsýslulög.

787. mál
[17:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tel hér um mjög áhugavert mál að ræða og í raun eðlilegt að þetta frumvarp sé lagt fram í ljósi þess að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að hún telji sig ekki hafa heimild til að leita ráðgefandi álits hjá EFTA-dómstólnum þegar hún er með álitaefni sem lýtur að EES-samningnum og einnig áfrýjunarnefnd neytendamála. Vissulega er litið á það þannig í Noregi að slíkar nefndir hafi þessa heimild án þess að kveðið sé á um í lögum, það sé á grundvelli almennra stjórnsýslureglna og EES-réttar.

Við fjölluðum hér áðan um blýhúðun, þegar Ísland setur íþyngjandi reglur og gengur lengra en kveðið er á um í tilskipunum og reglum Evrópusambandsins sem eru innleiddar hér á landi á grundvelli EES-samningsins. Við höfum líka verið að fjalla um, reyndar ekki komið fram frumvarp þess efnis sem lagt hefur verið fyrir þingið, bókun 35 þegar Ísland veitir minni rétt en tilskipanir Evrópuráðsins kveða á um. Það virðist eiga að koma frumvarp þar sem á að kveða á um rétthæð almennra laga á Íslandi, að reglur sem eiga uppruna sinn í Brussel séu rétthærri öðrum almennum lögum, kveðið á um forgangsreglu. Jafnvel þótt þú sért í fæðingarorlofi á Íslandi og hafir réttindi Íslendings á Íslandi þá ættirðu að geta sagt að þessi lög hérna eru rétthærri af því að þau eiga uppruna sinn í Brussel. Það gengur gegn þeim forgangsreglum um rétthæð laga sem eru óskráðar, að sérreglur gangi framar og yngri lög gangi framar almennum lögum.

Þetta lýtur allt að framkvæmd EES-samningsins á Íslandi sem og þetta frumvarp hér. Að sjálfsögðu eiga stjórnsýslunefndir að leita ráðgefandi álits telji þær þörf á túlkun svo við séum í samræmi við EES-samninginn. En við eigum líka að gera það við lagafrumvörp sem lögð eru fram þannig að þau gangi ekki gegn EES-samningnum. Það virðist eiga að leysa það með einhverri patentlausn sem gengur gegn stjórnarskránni og bindur hendur löggjafans til framtíðar. Við eigum líka að kanna það þegar reglur eru gullhúðaðar, ganga of langt. Vonandi verður það gert í samræmi við skýrslu hæstv. loftslags og umhverfisráðherra. Hér erum við komin að sjálfri stjórnsýslunni og mikilvægi þess að við séum að framkvæma EES-samninginn eins og við eigum að gera það, gera það rétt og í samræmi við samninginn þannig að íslensk stjórnsýsla sé ekki í lausu lofti þegar kemur að kærumálum til stjórnsýslunefnda.

Þetta er mikilvægt mál, sérstaklega í ljósi þess að það virðist vera að nefndir, alla vega tvær nefndir, hafa talið sig ekki hafa þessa heimild og við skulum vona að þetta verði að lögum og að við stöndum betur að lagasetningu á Íslandi, að öll lagasetning sé í samræmi við EES-samninginn og líka að við séum ekki að íþyngja Íslendingum með þyngri reglum án þess að vita það meira að segja. Allir sem styðja það að bókun 35 verði að lögum — það er ekki að lögum, það er þjóðréttarleg skuldbinding, það er ekki innleitt í íslenskan rétt — ættu auðvitað að styðja þetta frumvarp, þeim sem er umhugað um að íslensk lög séu túlkuð í samræmi við samninginn. Það segir í 3. gr. laganna um EES og hér er verið að tryggja að það verði gert í stjórnsýslunefndum. Ég get ekki séð annað en þetta sé í fullu samræmi við hina mikilvægu 3. gr. sem var sett í lög um EES sem leiddi til þess að EES-samningurinn var samþykktur fyrir 30 árum síðan, eða 31 ári síðan þar sem það var árið 1993.

Ég tel þetta vera mjög áhugaverð mál sem hér er vitnað til varðandi norrænar úrskurðarnefndir, t.d. úrskurðarnefnd um tollamál í Finnlandi og hið fræga Restamark-mál þegar einstaklingar ætluðu að flytja inn viskí og annað áfengi. Það fór til EFTA-dómstólsins. Líka mál hjá úrskurðarnefnd í málefnum heilbrigðisstarfsfólks í Noregi og mál um hugverkaréttindi og um útboðsmál í Noregi. Við eigum tvö mál sem úrskurðarnefnd hefur vísað til EFTA-dómstólsins, þ.e. kærunefnd útboðsmála samkvæmt heimild í lögum frá 2016, mál um Tak-Malbik og um Hraðbraut. Ég tel að það sé eðlilegt að gefa almenna heimild hér, við erum með eina sérstaka heimild og hún er um kærunefnd útboðsmála í lögum um opinber innkaup.

Ég ætla ekki hafa þetta lengra en vonast til að málið fái góða meðferð í þingnefnd.