þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944, með síðari breytingum, notkun fána á byggingum. Flutningsmenn eru Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Diljá Mist Einarsdóttir, Óli Björn Kárason, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Eyjólfur Ármannsson, hv. þingmenn.
Í 1. gr. segir:
„Við 7. gr. laganna bætist ný málsgrein, sem verður 1. mgr., svohljóðandi:
Tjúgufáninn skal dreginn á stöng alla daga ársins á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu kl. 8 að morgni og vera við hún til kl. 21 að kvöldi. Þessa fána skal lýsa upp í skammdeginu.“
2. gr. segir:
„Lög þessi öðlast gildi 1. desember 2024.“
Frumvarp þetta var áður flutt á 148. löggjafarþingi, 459. mál, 149. löggjafarþingi, 31. mál og á 150. löggjafarþingi, 325. mál. Í fyrri útgáfum frumvarpsins var einnig kveðið á um að flaggað skyldi með sama hætti við byggingu Hæstaréttar Íslands, embættisbústað forseta Íslands og skrifstofu hans í Reykjavík en gerðar hafa verið breytingar á frumvarpinu með tilliti til athugasemda sem bárust. Með frumvarpinu er lagt til að flaggað verði alla daga ársins frá kl. 8 að morgni til kl. 21 að kvöldi á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu og að fáninn verði lýstur upp í skammdeginu.
Herra forseti. Áhugi landsmanna á sögu íslenska fánans hefur aukist nokkuð á síðustu misserum ef marka má fjölda fyrirspurna sem hafa borist Vísindavef Háskóla Íslands. Ætla má að hinn aukni áhugi landsmanna tengist 100 ára fullveldisafmælinu 2018 og 80 ára afmæli lýðveldisins á þessu ári. Með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918 viðurkenndu Danir fullveldi Íslands. Á hádegi þann dag var klofinn fáni dreginn að húni á fánastöng Stjórnarráðshússins, eins og áður segir. Slíkur fáni nefnist einnig tjúgufáni en tjúga er annað orð yfir gaffal eða heykvísl. Fáninn sem dreginn var að húni 1. desember 1918 var sá sami og við notum í dag, heiðblár með hvítum krossi og hárauðum krossi innan í þeim hvíta. Blái liturinn var reyndar ljósari en við erum vön og varð ekki dekkri fyrr en árið 1944.
Um liti fánans var fjallað í konungsúrskurði sem gefinn var út 30. nóvember 1918. Sömu litir höfðu einnig verið tilgreindir í konungsúrskurði frá 19. júlí 1915. Litatillagan var önnur af tveimur sem svokölluð fánanefnd lagði fram 1913. Þessa fánahugmynd hafði Matthías Þórðarson, þá þjóðminjavörður, fyrst sýnt níu árum fyrr á fundi í Stúdentafélagi Reykjavíkur 27. september 1906.
Í grein í tímaritinu Valurinn 12. október 1906 er sagt frá fundinum. Þar er fána Matthíasar lýst og útskýrt hvað litirnir eiga að tákna. Með leyfi forseta:
„Á fundinum sýndi hr. Matthías Þórðarson prýðisfallegan fána, sem hann hafði dregið upp; var það hvítur kross í blám feldi, með rauðum krossi í miðjunni, og átti að tákna fjallablámann, ísinn og eldinn. Gazt mönnum hið bezta að fána þessum, og þykja oss miklar líkur til, að menn komi sér saman um, að velja hann.“ — Þennan fróðleik er hægt að finna á vef Stjórnarráðsins og Vísindavef Háskóla Íslands.
Ef við berum okkur saman við margar aðrar þjóðir hafa verið fremur stífar reglur um fánanotkun og fánatíma almennt hér á landi. Að mati Bandalags íslenskra skáta hefur virðing fyrir fánanum farið vaxandi og landsmenn farnir að nota hann talsvert meira en var. Engu að síður nota Íslendingar fánann lítið, nær eingöngu á fánadögum, sem eru ekki nema 12 á ári, og á knattspyrnuleikjum þar sem hann er vinsæll. Skátarnir hafa hvatt til notkunar á íslenska fánanum og vil ég taka undir það. Segja má að skátarnir séu sérstakir varðmenn fánans og fyrir það ber að þakka. Það er mat skátanna að staða fánans hafi verið að styrkjast og er það jákvætt. Fáninn okkar er fallegur og hefur engar neikvæðar tengingar.
Í þessu samhengi má nefna að það væri tilvalið að skátarnir tækju að sér að fræða landsmenn um notkun fánans, hvernig draga skuli hann að húni o.s.frv. Ríkisvaldið gæti styrkt skátana til þeirra verka. Vissulega eru til skriflegar leiðbeiningar um notkun fánans en það er að mínum dómi of algengt að ekki sé rétt með hann farið eins og t.d. þegar hann er dreginn í hálfa stöng.
Rétt er að skoða aðeins í samhengi þessa máls hvaða reglur og hefðir gilda í nágrannalöndum okkar þegar kemur að fánanotkun á opinberum byggingum. Hvað fánatíma snertir er það almennt þannig meðal Norðurlandaþjóðanna að fánatíminn er frá kl. 8 á morgnana til kl. 21 og horft er til þessara tímamarka í frumvarpinu. Á konungshöllinni í Svíþjóð er flaggað alla daga og við þinghúsið. Fánarnir eru teknir niður við sólsetur, þó ekki seinna en kl. 21. Í Noregi er flaggað alla daga við Stórþingshúsið og fáninn dreginn niður við sólsetur, þó ekki síðar en kl. 21.
Herra forseti. Sjálfstæðisbaráttu okkar Íslendinga fylgdi einnig barátta fyrir íslenskum fána. Hann er því táknmynd sjálfstæðisbaráttu okkar og fullveldis. Það er vel við hæfi að við gerum fánann okkar sýnilegri á Alþingishúsinu og á Stjórnarráðsbyggingunni. Með því að flagga alla daga ársins á Alþingishúsinu og á Stjórnarráðsbyggingunni sýnum við fánanum meiri virðingu og aukum veg hans, sömu virðingu og við sýnum landinu okkar, náttúrunni og menningu.
Að þessu sögðu, herra forseti, vísa ég málinu til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.