154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

40 stunda vinnuvika.

124. mál
[18:14]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Flutningsmenn þessa frumvarps eru allur þingflokkur Pírata ásamt öllum þingflokki Flokks fólksins og einhverjum, ég veit ekki hversu mörgum meðflytjendum utan þings sem ég kallaði eftir. Það eru hér tvær blaðsíður af upptalningu sem ég læt vera að telja upp.

Frumvarpið er stutt og laggott: Orðin „frá kl. 13“ í 1. mgr. 6. gr. falla brott í lögum um 40 stunda vinnuviku. Það þýðir að gamlársdagur og aðfangadagur eru heilir frídagar en ekki bara frá kl. 13.

Svo bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:

„Ef frídag ber upp á laugardag eða sunnudag skal frídagurinn færast á næsta virkan dag á eftir sem ekki er frídagur.“

Þetta er einfalt og skýrir sig sjálft.