154. löggjafarþing — 85. fundur,  12. mars 2024.

hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar.

125. mál
[18:15]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Þessi þingsályktunartillaga var upphaflega flutt af þeim sem hér stendur á 148. löggjafarþingi, 169. mál, en var ekki afgreidd. Ég mæli nú fyrir þingsályktuninni í fjórða sinn en alls hefur hún verið flutt sex sinnum, tvisvar sinnum af Sigurði Páli Jónssyni á 150. og 151. löggjafarþingi.

Ég vakti á því athygli þegar ég flutti málið síðast að vegagerð um Skógarströnd hefði lengi verið til umfjöllunar en samkvæmt heimild þar um var fyrst fjallað um veginn á Alþingi árið 1931. Þá voru uppi áform um brúargerð yfir Svelgsá og tók sú brúargerð á annan áratug að komast til framkvæmda. Hér er mælt fyrir því að kanna hagkvæmni þess að leggja um Skógarstrandarveg bundið slitlag á heilsársvegi og er það von mín nú þegar fimm ár eru liðin frá því að málið var fyrst á dagskrá að það hljóti afgreiðslu fyrr en brúarframkvæmdin við Svelgsá.

Í ljósi þess að tillagan hefur ekki hlotið afgreiðslu skal á það bent að ástand Skógarstrandarvegar er enn áþekkt að stærstum hluta því sem var fyrir fimm árum síðan þegar hún var fyrst flutt og í raun ekki mikið betra á stórum köflum en vegurinn var fyrir 50 árum síðan. Fyrirliggjandi áætlun gerir ekki ráð fyrir verulegum endurbótum í bráð og því er tillagan endurflutt nú óbreytt, enda má áætla að sú hagkvæmnisathugun sem lögð er til verði til þess að treysta forsendur ákvörðunar um skjótari aðgerðir við uppbyggingu Skógarstrandarvegar en eru áformaðar að óbreyttu. Ekki liggur heldur fyrir hvenær áætlað er að verkinu verði lokið og er óhætt að áætla að fari sem fari þurfi jafnvel að bíða lengur en eftir brúnni yfir Svelgsá fyrir hartnær 100 árum síðan. Það er vert að spyrja sig hvort það sé eðlilegt að þjóð nái ekki betri tökum á vegagerð á heilli öld en sem hér virðist.

Að mínu mati er áratugabið eftir nauðsynlegum úrbótum á veginum ótæk. Um er að ræða fjölfarna leið sem er jafnframt verslunar- og viðskiptaleið en um hana fara einnig ótal ferðamenn til að njóta þess menningarauðs og spennandi áfangastaða sem leynast víða við innanverðan Breiðafjörð. Það er alveg ljóst að umferð hefur stóraukist í þessu tilliti enda svæðið fjölsótt. Það er ekkert launungarmál að bættar samgöngur um Skógarströnd myndu stórauka möguleika til margvíslegs samstarfs og bættrar þjónustu á svæðinu, svo sem í heilbrigðis- og menntamálum en ekki síst í uppbyggingu ferðaþjónustu. Heilsársvegur um Skógarströnd myndi styrkja og færa samfélög við Breiðafjörð nær hvert öðru og sameina í ríkara mæli byggðirnar við Breiðafjörð sem eitt þjónustu- og atvinnusvæði.

Mikilvægi vegkaflans er undirstrikað í samgönguáætlun Vesturlands sem samþykkt var af öllum sveitarfélögum í landshlutanum en þar er lögð rík áhersla á uppbyggingu vegarins um Skógarströnd. Skógarstrandarvegur er einn stofnvega í landsfjórðungnum sem ekki er lagður bundnu slitlagi og einn örfárra slíkra á landsvísu og sýna gögn að slysatíðni á veginum er í senn há og vaxandi. Rannsókn sem gerð var á slysatíðni á veginum á árunum 2007–2010 undir stjórn Þórodds Bjarnasonar leiddi í ljós að Skógarstrandarvegur var einn þriggja hættulegustu vegkafla landsins. Í umsögn SSV um málið frá síðasta þingi segir frá úttekt sem Ólafur Guðmundsson, ráðgjafi í umferðaröryggismálum, vann fyrir samtökin á árinu 2019 en þar kom m.a. fram að umferð um Snæfellsnesveg 54 hefur aukist verulega. Frá 2013–2018 jókst umferð yfir sumartímann úr 1.654 bifreiðum í 2.566 á dag og má leiða að því líkur að umferðaraukning á Skógarströnd sé hlutfallslega sú sama. Slysatíðni hefur einnig hækkað umtalsvert. Flest slysa á Skógarstrandarvegi hafa haft í för með sér eignatjón, en minna er um alvarleg slys sem valda miklum skaða á fólki.

Ekki er ástæða til að ætla að þetta hafi breyst til batnaðar þar sem fréttir af umferðaróhöppum á þessum vegi eru tíðar, enda ástand hans bágborið og ljóst að hann stendur engan veginn undir þeirri umferð sem um hann fer né þjónar hann því hlutverki sínu að mynda greið tengsl milli byggðra bóla þar sem hann liggur. Leiðin um Skógarströnd er tenging Snæfellinga við aðra landshluta, bæði Vestfirði og Norðurland. Ástand vegarins kemur þó í veg fyrir að svo sé og keyra íbúar á Snæfellsnesi oftast um lengri veg suður fyrir Borgarnes nema við bestu skilyrði að sumri til að fara leiðar sinnar norður í land, sem og þeir sem eiga erindi á Snæfellsnes. Það er um 100 km lengri leið til Vestfjarða og 60 km lengri leið norður í land og það sama gildir um vöruflutninga sem eru umtalsverðir á milli Vestfjarða, Snæfellsness og Norðurlands, ekki síst með sjávarafurðir. Traustar samgöngur myndu þess vegna minnka útblástur vegna styttri vegalengda svo um munaði. Auk þess er vegstæðið um Skógarströnd ekki aðeins íðilfagurt með Breiðafjörð til annarrar handar og Bjarnarhafnarfjall til hinnar heldur liggur vegurinn um láglendi og er því sjaldnast ófær vegna snjóa.

Virðulegi forseti. Um er að ræða vegkafla sem hefur mikilvægt hlutverk til framtíðar. Tafir á framkvæmdum aftra uppbyggingu á svæðinu og samstarfi sveitarfélaga. Vegurinn er meðal hættulegustu vegkafla landsins í því ástandi sem hann er í dag. Það eru rík umhverfissjónarmið fyrir hendi í ljósi þess að fara þarf um lengri veg en ella til að komast leiðar sinnar frá Snæfellsnesi norður í land. Byggðirnar í nágrenni vegarins eiga sumar hverjar í vök að verjast í atvinnu- og byggðalegu tilliti og þegar horft er til aukningar ferðaþjónustu er svæðið auðugt af fjölbreyttri náttúru, sögu og menningarhefðum sem gætu staðið undir uppbyggingu ferðaþjónustu ef greiðar samgöngur væru fyrir hendi. Ég segi því aftur: Eftir hartnær 100 ára umræður um uppbyggingu Skógarstrandarvegar á Alþingi er kominn tími til athafna. Látum verkin tala og tengjum betur saman byggðirnar við Breiðafjörð.

Að lokum legg ég til að tillögunni verði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar.