Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, heilbrigðisráðherra, matvælaráðherra og utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1113, 1118, 1120 og 1123, um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 994, um styttingu náms í framhaldsskólum og fjárframlög, frá Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur.
Þá hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 442, um greiðslur almannatrygginga, frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, á þskj. 324, um búsetuúrræði fatlaðs fólks, frá Bryndísi Haraldsdóttur, á þskj. 1109, um útvistun ræstinga, frá Valgerði Árnadóttur, og á þskj. 1114, um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.