154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hlýt að leiðrétta hv. þingmann. Ég sagði ekkert um það að við hefðum ekki verið látin vita. Það sem ég var að upplýsa hv. þingmann um er að samkvæmt eigendastefnunni er gert ráð fyrir því að meiri háttar ákvarðanir skuli bornar undir Bankasýsluna sem fer með hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Það er hinn rétti ferill í þessum málum og það hefur ekki verið gert. Þetta myndi ég telja vera meiri háttar ákvörðun sem ætti að bera undir Bankasýsluna. Almennt, eins og ég fór yfir áðan í svari mínu, er ekki gert ráð fyrir því að ráðherra hafi skoðun á einstökum viðskiptalegum ákvörðunum en í tilfelli meiri háttar ákvarðana á að bera þær undir Bankasýsluna. Það er það sem ég tel víst að verði nú gert. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef er Bankasýslan með þetta mál til skoðunar og við munum fá frekari fregnir af því, því að þetta er auðvitað stórmál hvað varðar það að fara inn á nýtt svið, tryggingar, þar sem skiptir máli að öllum ferlum sé fylgt eins og lögin gera ráð fyrir.