154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

[15:28]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég átta mig á að þetta er sama umræðuefni og hefur verið hingað til en þetta voru vissulega aðrar spurningar heldur en hæstv. forsætisráðherra hafði fengið og ég hafði eiginlega vonast til þess að fá svar við þeim spurningum en ekki endurtekningu á svörum sem ég bað ekki um.

Spurningarnar eru annars vegar: Hvers vegna er fjármálaráðherra að tala svona beint gegn yfirlýsingu formanna stjórnarflokkanna? Hvaða leikur er hér í gangi, hæstv. forsætisráðherra? Af hverju gefur ríkisstjórnin út þetta skýra yfirlýsingu um að það standi ekki til að selja eftirlifandi hlut, eða að það standi bara ekki til að selja Landsbankann? — Ég vona að þetta sé rétt klukka núna hjá mér, virðulegur forseti. — Hvers vegna talar hún svona beint gegn þessari yfirlýsingu? Hefur hún ekkert umboð fyrir því? Er þetta bara eitthvert „solo play“ hjá henni til að búa sér til einhverja stöðu? Ég skil ekki hvers vegna fjármálaráðherra ríkisstjórnar Íslands talar bara beint gegn yfirlýstum markmiðum ríkisstjórnarinnar. Ég skil það ekki. Kann forsætisráðherra einhverjar skýringar á því?

Hins vegar: Hvers vegna er ekki búið að leggja Bankasýsluna niður? Mér heyrðist hæstv. forsætisráðherra vera byrjuð á að svara því. Það væri ágætt að heyra líka lokin á því svari.