154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Áform um kaup Landsbankans á tryggingafélagi.

[15:36]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur enn ekki svarað því hvort þetta mál hafi verið tekið fyrir eða rætt í ríkisstjórn, mál sem hefur verið í undirbúningi að því er virðist í fimm eða sex mánuði eftir því sem fram kom hér áðan. En hæstv. forsætisráðherra ítrekar það enn og aftur að orð og stefna hæstv. fjármálaráðherra séu ekki í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er það sem liggur fyrir í dag eftir svör hæstv. forsætisráðherra. Hæstv. forsætisráðherra er búinn að útskýra fyrir Alþingi að hæstv. fjármálaráðherra tali með hætti sem gangi gegn stefnu ríkisstjórnarinnar. Þá spyr ég hæstv. ráðherra: Hvað stendur til? Hvernig verður brugðist við þeirri stöðu sem þá er upp komin? Verður brugðist við á einhvern hátt eða reynt að sópa þessu undir teppið og látið eins og ekkert hafi gerst? Ég ætla bara að spyrja á einfaldan hátt: Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra til kaupa Landsbankans á TM tryggingum (Forseti hringir.) og hvað gerist núna þegar liggur fyrir að hæstv. forsætisráðherra er búinn að setja ofan í við hæstv. fjármálaráðherra og segir hann ganga gegn stefnu ríkisstjórnarinnar?