154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.

[15:39]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það er ekki á hverjum degi sem íslenska ríkið eignast tryggingafélag en samkvæmt fréttum í gær og í dag er ljóst að TM verður fljótlega eign Landsbankans sem er að langmestu leyti í eigu ríkisins. Ég ætla þó að stilla mig um að óska Sjálfstæðisflokknum til hamingju með þessa vel heppnuðu ríkisvæðingu en segja má samt að ríkisvæðingin sé rökrétt skref hjá flokknum sem nánast tókst að gulltryggja í síðustu einkavæðingu í fjármálakerfinu að ekki yrði selt meira í bönkunum á kjörtímabilinu. Nú liggur sem sagt fyrir að þrátt fyrir allt tal um minni umsvif ríkisins á fjármálamarkaði hyggst ríkisbankinn kaupa eitt stykki tryggingafélag. Og þrátt fyrir að fjármálaráðherra hafi lýst því yfir að slíkt myndi ekki gerast á hennar vakt ætlar bankinn samt sem áður að halda sínu striki samkvæmt því sem kom fram í hádegisfréttum. Ráðherrann ætlar þó að óska eftir skýringum frá Bankasýslunni.

Staðan er því sú að fjármálaráðherra úr flokki einkaframtaksins leitar núna skýringa hjá stofnun sem leggja á niður hvernig standi á því að tryggingafélag sé ríkisvætt af banka sem mögulega á að einkavæða. Þetta er vægast sagt mjög sérstakt allt saman. Stjórnendur Landsbankans rökstyðja þetta með því að það sé skylda þeirra að auka virði bankans fyrir hluthafa. Með sömu rökum má vel hugsa sér að ríkisbankinn hasli sér líka völl í matvöru, eldsneyti eða á fatamarkaði. Möguleikarnir eru jú endalausir.

Ég vil beina orðum mínum til hæstv. viðskiptaráðherra sem jafnframt er varaformaður Framsóknarflokksins og hefur mikla þekkingu á þessum málum. Hugnast hæstv. ráðherra að Landsbankinn kaupi stórt tryggingafélag á sama tíma og það er stefna stjórnvalda að draga úr umsvifum ríkisins á fjármálamarkaði? Telur hæstv. ráðherra að þetta sé í samræmi við eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum? Og ef svo er ekki, telur hæstv. ráðherra að stjórnvöld geti með einhverjum hætti stöðvað þessi áform Landsbankans út frá armslengdarsjónarmiðum? Og ekki síður: Er æskilegt að það verði gert?