Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn og nefna það fyrst að það er auðvitað gríðarlega mikilvægt þegar verið er að einkavæða hlut ríkisins í fjármálastofnunum að það sé gert á gagnsæjan og opinn hátt. Þegar ríkið fór í þá vegferð varðandi Landsbankann heppnaðist fyrsta einkavæðingin, eða fyrsti þátturinn, mjög vel. Ég er á þeirri skoðun að sá seinni hafi ekki verið eins farsæll og við hefðum viljað að hann væri.
Varðandi þessi næstu skref sem hafa bara verið að birtast núna síðasta sólarhringinn er það auðvitað svo að að mínu mati er ríkið ekki að fara að einkavæða Landsbankann. Það er ekki stefna stjórnvalda og það er að mínu mati mjög brýnt að við séum skýr í því, vegna þess að það snýr líka að gagnsæi og fyrirsjáanleika á fjármálamarkaði hvað ríkisvaldið er að losa um mikið magn inn á markaðinn. Það er því mjög brýnt að þetta sé á hreinu.
Í öðru lagi er það svo að við vorum nú bara að fá upplýsingar um það í gær hvað væri að gerast, þannig að ég á eftir að kynna mér það mun betur nákvæmlega hvernig þetta allt er og hvað Landsbanki Íslands er að hugsa og hvernig hann sér þetta fyrir sér. Ég skal bara vera alveg hreinskilin, þetta er bara að koma upp akkúrat núna.