154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki.

[15:44]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Það sem ég vil segja um þetta mál er að okkur ber auðvitað að virða armslengdarnálgunina og hún er mjög mikil. En það er auðvitað líka þannig að stjórnmálamenn hafa skoðanir og þarna var fjármála- og efnahagsráðherra að tjá sína skoðun á því hvað henni greinilega finnst um þessa þróun. Það breytir því hins vegar ekki að í gildi er eigendastefna, mjög skýr stefna stjórnarflokkanna um hvernig við ætlum að losa um eignarhlut ríkisins, en að mínu mati er alltaf best að gera þetta í opnu, gagnsæju og fyrirsjáanlegu ferli til þess að það sé trúverðugleiki og að traust ríki um það sem við erum að gera. Okkur hefur farnast vel að einhverju leyti og erum að laga ákveðna hluti, (Forseti hringir.) en það er alla vega mín skoðun á þessum tímapunkti að það eigi ekki að setja of mikið magn í umferð þegar tíminn er ekki meiri en hann er, þ.e. þetta þarf að vera á ákveðnu tímabili því annars getur verð og annað slíkt farið að hreyfast til.