154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Endurskoðun á lögum um horfna menn með tilliti til tæknibreytinga.

[15:46]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Fyrirspurn mín beinist að hæstv. dómsmálaráðherra og varðar lög um horfna menn. Því miður getur það gerst að einstaklingur hverfi nánast sporlaust og fjölskyldan, lögreglan og stjórnvöld leita þá að honum. En það kemur fyrir að það reynist ómögulegt að finna einstaklinginn eða vita örlög hans. Í þeim tilvikum er horft til laga um horfna menn. Það er til að leysa úr þeim hnútum sem myndast í sambandi við eignir hans og skuldir, ásamt réttarstöðu þeirra sem eru í lögtengslum við hann. Eftir þrjú ár er hægt að úrskurða einstaklinginn látinn og skipta eignum hans en vegna þess hversu sjaldan það gerist fá aðstandendur mjög misvísandi upplýsingar. Þeir eru í mjög erfiðri stöðu og þá sérstaklega hvað varðar skuldir hans. Lögin gera ráð fyrir fjárráðamanni en gera ekki ráð fyrir þeirri tæknibyltingu sem hefur átt sér stað. Fjölskyldumeðlimir geta því lent í miklum erfiðleikum með að greiða reikninga hins horfna, komast ekki inn á heimabanka eða rafræn skilríki til að fá aðgang að gögnum um hann. Hægt er að fá afrit af skattskýrslum hans en aðgengi og yfirlit yfir útistandandi kröfur er ekki til staðar fyrr en innheimtubréfin koma inn um lúguna. Þetta getur skapað mjög erfiðar aðstæður, t.d. ef einstaklingurinn er sá í fjölskyldunni sem er skráður fyrir öllum eignum og öllum samningum. Því ætti vissulega að vera leikur einn í nútímanum með stafrænt aðgengi að öllum gögnum að greiða úr þeim flækjum sem myndast í svona málum. Því vil ég spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvort hann hyggist endurskoða lög um horfna menn með tilliti til stafræns Íslands og þeirra tæknibreytinga sem hafa átt sér stað síðan lögin voru sett 1981 — ekki hafa verið gerðar efnislegar breytingar á þeim síðan — til að einfalda líf aðstandenda horfinna einstaklinga hvað varðar aðgengi að gögnum.