154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Endurskoðun á lögum um horfna menn með tilliti til tæknibreytinga.

[15:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Lög um horfna menn, nr. 44/1981, hafa tekið litlum sem engum efnislegum breytingum, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, frá gildistöku þeirra 9. júní 1981. Lögin hafa snertingar við eftirfarandi lög en á grundvelli þeirra er unnt að beita stafrænum lausnum við málsmeðferðina:

Í lögum um skipti á dánarbúum o.fl. er heimild fyrir rafræna málsmeðferð sem er í gildi til 31. desember 2025. Fram að því er verið að endurskoða löggjöfina með það að markmiði að festa heimildirnar varanlega í sessi.

Þetta snertir einnig lögræðislög. Þau bjóða upp á rafræna málsmeðferð samkvæmt IX. kafla stjórnsýslulaga. Svo eru það lög um meðferð einkamála, en verði frumvarp mitt sem nú er statt hjá allsherjar- og menntamálanefnd um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., miðlun og form gagna, fjarþinghöld, birting ákæra o.fl., að lögum þykir ljóst að málsmeðferðin samkvæmt lögum um horfna menn geti að miklu leyti orðið stafræn.

Dómsmálaráðuneytið er um þessar mundir, eins og mörg önnur ráðuneyti, að vinna að endurskoðun laga sem heyra undir ráðuneytið og þá sérstaklega orðalag sem felur í sér hindranir fyrir stafræna málsmeðferð. Unnið er að því að gera orðalag laganna tæknilega hlutlaust þannig að rafrænar og stafrænar lausnir rúmist innan laganna og lagatextinn sjálfur feli ekki í sér hindranir.