154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Endurskoðun á lögum um horfna menn með tilliti til tæknibreytinga.

[15:50]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Ég tel alveg nauðsynlegt að við breytum lögum á þann veg sem samræmist nútímasamfélagi og þeim stafrænu lausnum sem við búum nú yfir. Vandinn er margþættur, eins og við fórum yfir hér áðan, og sem betur fer ekki margir sem lenda í þeim aðstæðum að nákominn einstaklingur hverfi. En þetta getur gerst hvar sem er, hvenær sem er. Það er mjög mikilvægt að lögin séu skýr því að þeim er m.a. ætlað að skýra stöðu og taka utan um fjölskyldur á afskaplega viðkvæmu tímabili. Því er ég mjög ánægð að heyra það sem fram kom hér, að það sé verið að endurskoða margt sem gæti komið að þessu. Þetta þarf að vera mjög skýrt. Það þarf að tryggja að staða þessara aðstandenda sé skýr og að aðstæður þeirra séu ekki erfiðari en þær þurfa að vera.