Endurskoðun á lögum um horfna menn með tilliti til tæknibreytinga.
Virðulegi forseti. Eins og kom fram í máli mínu hér áðan þá er dómsmálaráðuneytið um þessar mundir að vinna að endurskoðun laga. En hvenær vinna við endurskoðun laga um horfna menn fer fram og til hvaða atriða hún tekur, það er erfitt að segja til um að svo stöddu. Ég tek undir með hv. þingmanni að lögin verða að taka mið af raunveruleikanum. Fólk er í gríðarlega viðkvæmri stöðu og það er að sjálfsögðu minn vilji og hugur minn stendur til þess að kerfið sem við höfum byggt upp eigi að aðstoða fólk í þeim aðstæðum sem það er að glíma við á hverjum tíma. Við tökum öll heils hugar undir það að aðstæður fólks eru sjaldan eins viðkvæmar og akkúrat í þessu.