154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:04]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að hreyfa hér mjög mikilvægu máli og viðfangsefni okkar hér á hinu háa Alþingi. Ég ætla að nota tækifærið hér til að byrja með til að minna á þá vinnu sem hefur farið fram í þinginu undanfarið eitt og hálft ár frá því að Ríkisendurskoðun skilaði skýrslu um Úrvinnslusjóð til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem síðan vísaði þeirri sömu skýrslu til umsagnar í umhverfis- og samgöngunefnd og þar dvaldi sú skýrsla um hríð. En hún kom aftur inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd núna fyrir áramótin og þá var það í rauninni okkar verkefni í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að ákveða hvort við ætluðum að ljúka umfjölluninni þar og þá en ákváðum að doka við vegna þess að það hefur svo langur tími liðið að Ríkisendurskoðun er núna að fylgja eftir skýrslunni frá 2022 um Úrvinnslusjóð. Mér finnst mikilvægt að þetta komi fram hér við þessa umræðu af því að Úrvinnslusjóður er lykilapparat í því kerfi sem við höfum komið okkur upp og var undir harðri gagnrýni, ég held að það megi bara segja það. En það hafa verið gerðar miklar umbætur bæði í stjórnun og skipulagi sjóðsins og ég bind vonir við að þær skili áþreifanlegum árangri í starfi þess sjóðs. Hvað varðar hins vegar lagaumgjörð sjóðsins sem slíks og kerfið sem við höfum komið okkur upp þá er kannski tímabært að við ræðum hvort við viljum hafa það með þessum hætti. Við þykjumst vera að færa okkur yfir í framleiðendaábyrgð en við erum svolítið lengi á leiðinni þangað. Kannski er Úrvinnslusjóður ekki besta leiðin til að gera það en hins vegar þarf að meta það. Ég held að það sé mikil vinna fram undan í því.