154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:09]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Við ræðum hér hringrásarhagkerfið og úrgangsmál sem sannarlega er löngu tímabært. Auðvitað, eins og hér hefur verið nefnt, er þetta ekki ný vegferð sem við erum á. Ég vil að venju þakka málshefjanda fyrir hennar innlegg og ráðherra fyrir hans yfirferð. Ég hef lengi verið á þeirri skoðun að það felist veruleg tækifæri í úrgangsmálum hér á landi enda fleygir tækninni fram hvað þetta varðar. Við erum ekki eina landið sem glímir við þessar áskoranir en hér hafa m.a. komið fram mjög öflugar hugmyndir um hringrásarhagkerfið. Mætti nefna þar græna iðngarða sem eru að ryðja sér til rúms þar sem hrat frá einni framleiðslu er notað sem efniviður í aðra vinnslu og þannig megi auka nýtingu og hagkvæmni og skapa tekjur og samlegðaráhrif. Hér lengst af var það þannig að menn töldu sorp almennt bara vera kostnað sem félli á sveitarfélög. En nú er öldin önnur og í því felast tækifæri. Það sem hefur verið rætt og ráðherra fór hér ágætlega yfir er að Ísland sem lítið land þolir kannski ekki margar slíkar brennslustöðvar. Upp hefur komið sú hugmynd að koma fyrir sorporkustöð í næsta nágrenni við brennslustöðina Kölku í Helguvík t.d., þar gætu legið ákveðin tækifæri og samlegðaráhrif. En ég held að það sé langfarsælast að við stígum þessi skref saman, ríki og sveitarfélög. Það mætti skoða til að mynda PPP-fyrirkomulag við að reisa slíka stöð, enda er hún kostnaðarsöm og án efa mun taka einhver ár að láta hana bera sig. En hún gæti líka verið vænlegur kostur til að styðja við hitaveituvæðingu á köldum svæðum og ég vil aðeins koma að því í seinni ræðu minni hér á eftir.