Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir umræðuna og hæstv. ráðherra fyrir sín svör. Hringrásarhagkerfið, áhersla á að draga úr neyslu, nýta betur og lengur og auka endurvinnslu eru veigamiklir þættir í umhverfis- og loftslagsmálum. Þetta eru einföld verk á færi flestra sem við sinnum gjarnan í hversdagslegu lífi og skila ótrúlega miklu þegar upp er staðið við að draga úr mengun í umhverfinu. Það var mikilvægur áfangi hjá fyrrverandi umhverfisráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, að fá lögfest lög um hringrásarhagkerfið og nú þarf núverandi ráðherra að fylgja þeim vel eftir því að úrgangur sem endar í ruslinu er nefnilega ekkert annað en auðlind á villigötum.
Til þess að þetta gangi sem best er mikilvægt að innviðir sem styðja við endurvinnslu og hringrásarhagkerfið séu eins og best verður á kosið. Ákveðnar áskoranir hafa fylgt því hvernig við notum t.d. aukaafurðir, svo sem metan frá gasgerðarstöðvum, og líka áskoranir er varða urðun dýrahræja. Þarna þurfum við að gera enn betur og koma þeirri orku sem verður til í góða notkun og einnig að fylgja eftir löggjöf varðandi dýrasjúkdóma. Það er mikilvægt að til staðar sé góð þjónusta, tæknilausnir og hvatar sem bæta flokkun og minnka úrgang. Mín skoðun er sú að við eigum að greiða fyrir úrgang sem endar í ruslinu með beinum hætti. Það má t.d. sjá fyrir sér smáforrit og einhvers konar merkingu á ruslatunnum fyrir almennt sorp sem ýmist fer til urðunar eða brennslu þar sem greitt er fyrir magn því að þeir eiga að borga sem menga. Þetta þurfa sveitarfélög að útfæra vel. Þegar kostnaðurinn kemur við budduna þarf fólk nefnilega að flokka betur og ég hvet þau sem hafa áhuga á nýsköpun að grípa þennan bolta.
Virðulegi forseti. Hér er ég þó ekki að draga upp þá mynd að flokkun gangi ekki með ágætum. Sums staðar hefur verið flokkað lengi, m.a. lífrænt, og gengið vel. En ekki er allt rusl lífrænt. Aukningin á losun á rusli frá hverju heimili hefur vaxið gríðarlega síðustu áratugi og mun að óbreyttu halda áfram að vaxa. Einfaldasta leiðin til að minnka rusl frá heimilum (Forseti hringir.) er að kaupa minna, breyta neysluvenjum á þá vegu að kaupa frekar umbúðalaust og svo mætti lengi telja. Ég kalla eftir því að við tölum um þetta í sömu andrá enda er bætt nýting lykilatriði í hringrásarhagkerfinu.