154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:17]
Horfa

Rafn Helgason (V):

Forseti. Sóun er dýr. Á hverjum degi fara gífurleg verðmæti forgörðum af því að þau eru ekki endurnýtt og ekki endurunnin heldur fargað. Gott dæmi um þetta er magn niturs, fosfórs og kalíns sem nýtt er í landbúnaði en samanlagt heildarmagn næringarefna í lífrænum hráefnum á Íslandi jafngildir því magni næringarefna sem við flytjum inn fyrir háar fjárhæðir á hverju ári. Samkvæmt rannsókn Guðmundar Steingrímssonar frá árinu 2022 eru 8,5% af hagkerfi Íslands í hringrás. Það þýðir með öðrum orðum að af öllu sem neytt er á Íslandi er hægt að sýna fram á að 8,5% nýtist aftur innan hagkerfisins með einhverju móti. Restin er töpuð verðmæti. Íslenska hagkerfið einkennist með öðrum orðum af mikilli neyslu og miklum úrgangi. En það er til mjög áhrifaríkt verkfæri til að vinna gegn þessu, svonefnd mengunarbótaregla sem kveður á um að þau sem menga borgi kostnaðinn sem hlýst af því. Þannig er hægt að leiðrétta markaðsbrestinn sem verður til þegar sóun er bókstaflega ábatasöm. Í frjálsu markaðshagkerfi er það beinlínis hlutverk stjórnvalda að koma í veg fyrir slíka markaðsbresti. Fyrst þarf ríkisstjórnin að viðurkenna þá staðreynd að markaðurinn einn og sér hefur ekki og mun ekki ná almennilega utan um vandamál eins og loftslagsbreytingar og sóun efna og orku, vandamál sem teygja anga sína þvert yfir landamæri og jafnvel kynslóðir. En kostnaðinn erum við þó þegar farin að greiða og hann verður enn meiri í framtíðinni. Mengunarbótareglan skapar hvata til að nýta betur það sem er framleitt og dregur úr sóun. Við munum ekki ná árangri í loftslagsmálum fyrr en kostnaðurinn á vörum endurspeglar ytri áhrif þeirra. Þetta er lykillinn að því að auka hlut hringrásarhagkerfisins á Íslandi.