154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:21]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er vissulega alveg rétt að ýmislegt kemur frá Brussel sem fólki þykir misgott. En við skulum hafa það í huga að það væri lítilfjörlegur garðurinn sem í stæðu blómin og plönturnar í löggjöf um umhverfisvernd á Íslandi, m.a. um sorphirðu og fráveitur, ef ekki væri fyrir aðild okkar að EES-samningnum. Höfum það í huga þegar við ræðum um þessi mál í þessu stóra samhengi.

Mig langar til að víkja að neyslusamfélaginu, þ.e. orsökum þess að við erum að drukkna í drasli sem samfélag. Það er vegna þess að við erum ofurneytendur sem endurnýjum föt, tæki, bíla o.s.frv. hraðar en sjálfbært er. Það þýðir að við þurfum að stuðla að því að fólk sé meðvitaðra um neyslu sína af því að neyslan er losun, neyslan býr til úrgang og neyslan fylgir líka, svo við tökum eitt nærtækt dæmi, skynditískunni og netversluninni sem henni fylgir. Við erum ekki að gera nógu vel í því að fræða fólk á öllum aldri um kostnaðinn við þetta af því að það er auðvitað þannig að úrgangurinn fer ekki. Hv. málshefjandi var að tala um urðunarstaði á Íslandi og það er líka talað um sorpbrennslur. Við erum ekki með heildarsýnina. Við þurfum að hafa hana og við þurfum líka að tala við almenning í landinu um verðmætin sem felast í því að innleiða alvöruhringrásarhagkerfi sem við öll getum tekið þátt í, bæði almennir neytendur, heimili og ekki síður fyrirtæki. Það er kannski hægt að segja það að að mörgu leyti eru fyrirtæki á Íslandi miklu meðvitaðri um þetta og gildi þess að fara inn í hringrásina því að þau sjá það í hverjum mánuði í rekstrarreikningnum sínum.