Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.
Frú forseti. Þetta hefur verið mjög áhugaverð umræða hér um mitt hjartans mál, sem eru umhverfismálin. Það hefur ýmislegt nýtt borið á góma hér og ný stefnumál. Það sem mér fannst undarlegt að heyra, sem kom hér fram hjá hv. málshefjanda, ef ég misskildi ekki, að hún vildi ríkisvæða málaflokkinn. Það er kannski svolítið í anda við þema dagsins, það er verið að ríkisvæða hér tryggingafélag og nú á að fara að ríkisvæða sorpið eða ruslið. En það er verið að ræða ýmis mál og milljarða og flókin mál og mig langar að lenda þessari umræðu, mig langar að lenda henni norður í Húnavatnssýslu. Þar breytti stofnun og ráðuneyti hæstv. umhverfisráðherra túlkun reglna um hvað mætti urða á urðunarstað. Nú er ekki lengur hægt að koma af sér menguðum úrgangi úr olíuskiljum og sandskiljum. Hvaða afleiðingar hefur það haft? Jú, það eru einhverjir sandbingir mögulega hjá verktökum hingað og þangað og síðan eru olíuskiljurnar að verða óvirkar. Þess vegna nota ég hér tækifærið og skora á hæstv. ráðherra að færa nú túlkun reglnanna aftur eins og þær voru fyrir síðustu áramót. Hvað þýðir það? Það gefur sveitarfélögunum ráðrúm til þess að finna betri lausn fyrir þennan úrgang.
Eitt í lokin sem ég held að sé ágætt að fara yfir. Umhverfismálin eru tækifæri. Það er ávinningur í því að gera vel og mér finnst við kannski týnast svolítið í því að horfa á kostnaðinn, en góðar og vel heppnaðar aðgerðir í umhverfismálum skila árangri. Ef einhver er að hugsa um að tæma vel úr mjólkurfernunni þá þarf hann síður að kaupa og nýtir hráefnið betur. Það sama á við um fyrirtækin þannig að það eru vissulega tækifæri. Ég vona að hæstv. ráðherra taki þessa brýningu héðan úr sveitinni að norðan og breyti þessum reglum í fyrra horf.