154. löggjafarþing — 86. fundur,  18. mars 2024.

Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.

[16:26]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Afskaplega góð umræða sem hér á sér stað. Eitt af því sem ég nefndi í fyrri ræðu minni voru hugmyndir sem hafa komið fram varðandi sorporkustöð og hvar hún yrði staðsett og hvernig eignarhald hennar yrði. Ég hef verið lengi á þeirri skoðun að þetta sé bara það stórt verkefni að það þurfi bæði aðkomu ríkis og sveitarfélaga og mögulega einkaaðila ef það telst kostur fyrir verkefnið. Ég velti því líka upp hvort sorporkustöð, eins og hér hefur verið nefnd í umræðunni og hefur, ef ég man rétt, fjórum sinnum komið hér fyrir þingið, ætti heima á köldum svæðum. Við erum jú svo heppin á Íslandi að hita húsakost okkar að langmestu leyti með háhita, heitu vatni, og þar sem því verður ekki við komið gæti verið kostur að koma sorporkustöð niður til að nýta einmitt strauma frá henni til húshitunar. Það felast auðvitað gríðarleg tækifæri í hringrásarhagkerfinu og við eigum eftir fremsta megni að reyna að ýta undir það. Það er m.a. vegna þess að tækninni hefur fleygt fram. Hugmyndafræðin í kringum hringrásarhagkerfið er líka að festa sig í sessi í samfélaginu sem þýðir að það verður auðveldara að ekki bara fá fyrirtæki og stofnanir á vagninn heldur fyrst og fremst almenning, sem er jú lykilþátttakandi í því að vel gangi. Þess vegna vil ég hvetja ráðherra til dáða. Ég veit að honum eru þessi mál mjög hugleikin. Hann fór ágætlega yfir það í sinni ræðu. En ég held að ég sé líka bara að kalla svolítið eftir, ekki bara frumkvæði heldur forystu í þessu. Við megum raunverulega engan tíma missa.