Úrgangsmál og hringrásarhagkerfið.
Forseti. Smá hugmynd, létt og lipur: Það á ekki að vera til neinn úrgangur. Allt sem heitir úrgangur á að vera nýtanlegt í eitthvað og ef það er eitthvað sem er ekki nýtanlegt í eitthvað annað í framhaldinu eigum við einfaldlega að hætta að nota það. Við eigum ekki að búa það til til að byrja með. Það er í rauninni hugmyndafræðin á bak við hringrásarhagkerfið þegar allt kemur til alls, að það sé enginn úrgangur — punktur.
Mér finnst mjög áhugavert hvernig við reynum að nálgast þessa umræðu í staðinn fyrir að sjá þetta bara fyrir okkur sem markmið og vera með skýra stefnu um það hvernig við ætlum að ná þangað. Hver eru skrefin? Píratar eru með þingmál fyrir þetta, þingsályktun um að skikka hæstv. ráðherra til að koma með nákvæmlega svona áætlun. Við höfum ekki komist í að mæla fyrir henni enn þá en það gerist nú vonandi fljótlega. Það gengur eitthvað aðeins á þessi þingmannamál þegar mál ríkisstjórnarinnar eru ekki það mörg en það er lítið eftir af þinginu. Svona gerist þetta.
Þrátt fyrir þetta erum við í núverandi fyrirkomulagi með efni sem eru endurnýtanleg en eru einhverra hluta vegna ekki endurnýtt, plast t.d. Það var plastmál sem vann rannsóknarblaðamennskuverðlaun síðasta árs þar sem komst upp um að plast endaði í einhverjum geymslum einhvers staðar í Svíþjóð eða var brennt einhvers staðar þar sem átti ekkert að brenna það. Svo erum við með Tetra Pak-umbúðirnar sem eru greinilega ekki nýtanlegar í það sem þær eru sagðar vera nýtanlegar í hvað varðar afgreiðslu þeirra sem úrgang.
Það er mjög margt sem við þurfum að hugsa alveg upp á nýtt í þessum málum. Við verðum að hafa það á einstaklega heiðarlegum forsendum og viðurkenna að staðan eins og hún er í dag er ekki góð.